Kosningar
9. september 2021
Halldóra Mogensen, þingflokksformaður Pírata, segir að ríkissjóður geti tekið lán til að koma á borgaralaunum í fyllingu tímans. Píratar leggja til í kosningastefnuskrá sinni að á komandi kjörtímabili verði tekin fyrstu skrefin í átt til borgaralauna eða skilyrðislausrar grunnframfærslu. Þetta kemur fram í ýtarlegu viðtali í Dagmálum þar sem Halldóra ræðir við þá Stefán Einar Stefánsson og Andrés Magnússon um stefnu Pírata.