Þrátt fyrir að Adrián hafi kostað Liverpool mark með skelfilegum mistökum gegn Southampton átti hann einnig eina af bestu markvörslum 2. umferðar í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.
https://www.mbl.is/sport/enski/2019/08/20/fimm_bestu_mork_2_umferdar_myndskeid/
Jordan Pickford hjá Everton er eini markvörður deildarinnar sem haldið hefur marki sínu hreinu í fyrstu tveimur umferðunum. Hann á eina af fimm bestu markvörslum 2. umferðar en þær má sjá hér að ofan.
Varsla 1: Nick Pope fyrir Burnley gegn Arsenal
Varsla 2: Jordan Pickford fyrir Everton gegn Watford
Varsla 3: Adrián fyrir Liverpool gegn Southampton
Varsla 4: Hugo Lloris fyrir Tottenham gegn Manchester City
Varsla 5: Rui Patrício fyrir Wolves gegn Manchester United