Leicester vann sinn fjórða leik í röð í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu þegar liðið fékk Arsenal í heimsókn á King Power-völlinn í Leicester í tólftu umferð deildarinnar í gær. Leiknum lauk með 2:0-sigri Leicester en staðan í hálfleik var markalaus.
Leicester fer með sigrinum upp í annað sæti deildarinnar í 26 stig og er með jafn mörg stig og Chelsea. Liðið hefur eins stigs forskot á Manchester City sem mætir Liverpool síðar í dag í stórleik helgarinnar en Arsenal er í sjötta sætinu með 17 stig, átta stigum frá Meistaradeildarsæti.
Mörkin úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan, en hann var í beinni útsendingu á Símanum sport og á mbl.is.