Ísjaki sem er átta sinnum stærri en Manhattan-eyja hefur brotnað frá íshellu Suðurskautslandsins. Talin er hætta á að jakinn trufli siglingar skipa á svæðinu.
Í frétt Sky-fréttastofunnar segir að vísindamenn á Bretlandseyjum hafi fengið fjármagn til að rekja ferðir ísjakans en hann brotnaði af íshellunni við Pineeyjajökul í júlí.
Vísindamennirnir munu fylgjast með ferðum jakans og mæla bráðnun hans.
Grant Bigg, prófessor við háskólann í Sheffield, segir að ísjakinn ógni ekki umhverfi eins og er en jakar sem hafi brotnað frá íshellunni á sama stað hafi rekið út í Suður-Atlantshaf og skapað hættu á siglingaleiðum.
Hann segir að ef ísjakinn verði áfram við strendur Suðurskautslandsins muni hann bráðna smám saman og þar með meira ferskt vatn blandast sjónum. Það gæti haft áhrif á hafstrauma. Hann segir að ef slíkt gerist oft gæti það haft langtímaáhrif á sjóinn við Suðurskautslandið og hafstrauma.