Fram kemur í tilkynningu frá Veiðifélaginu Hreggnasa að þar hafi verið ráðin inn þekkt tékknesk veiðikona sem bætist við breiðan hóp leiðsögumanna fyrirtækisins í sumar.
Innan fyrirtækisins starfar hópur fólks sem hefur mikinn áhuga á stangaveiði og útivist og hefur félagið margar af bestu laxveiðiám landsins á sínum snærum. Í sumar mun Katka Svargrova frá Tékklandi bætast í hópinn og verður á bökkum vatnasvæða félagsins veiðimönnum til aðstoðar. Hún hefur mikla reynslu af fluguveiði víða um heim og hefur meðal annars orðið fimmfaldur Tékklandsmeistara í fluguveiðum.
Þá kemur að auki fram að félagið hyggist bjóða upp á sérstakt námskeið um veiðar andstreymis með púpum og þurrflugum sem Katka muna stýra.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Miðfjarðará | Agnar Sigurjónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Hvítá við Iðu | Gunnar Pétursson | 20. september 20.9. |