Hítará á Mýrum opnaði í morgun og á fyrstu klukkutímunum var þegar búið að landa nokkrum löxum
Samkvæmt upplýsingum frá Stangveiðifélagi Reykjavíkur, sem heldur utan um leigu á ánni, var búið að landa fjórum löxum um tveimur klukkustundum eftir að veiði hófst þar um klukkan sjö í morgun.
Þá kom fram að samkvæmt upplýsingum frá fiskifræðingnum sem sér um Langá á Mýrum þá höfðu 75 laxar gengið í gegnum teljarann í Skuggafossi nú í morgun og þar af höfðu 30 gengið í gegn síðasta sólarhring. Langá opnar í fyrramálið, en það er degi fyrr en undanfarin ár.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Miðfjarðará | Agnar Sigurjónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Hvítá við Iðu | Gunnar Pétursson | 20. september 20.9. |