Magnaður árangur sleppinga í Leirá

Harpa með einn af þessum tuttugu sem veiðst hafa í …
Harpa með einn af þessum tuttugu sem veiðst hafa í Leirá það sem af er degi. Stærð fiskanna er sérstakt ánægjuefni og rekur Harpa það til sleppinga á birtingi síðustu þrjú árin. Ljósmynd/Stefán

Veiðin á opnunardeginum í Leirá er með ólíkindum. Nú hafa veiðst tuttugu birtingar það sem af er þessum degi. Það er kannski ekki endilega fjöldinn einn sem fær menn til að reka upp stór augu heldur líka stærð fiskanna. Sá stærsti í dag er 82 sentímetrar og hefur það verið sjaldséð stærð í Leirá.

Komið í bíl til að bræða af vöðlunum. Fátt sem …
Komið í bíl til að bræða af vöðlunum. Fátt sem tengist vori þennan daginn nema sjóbirtingurinn. Ljósmynd/Harpa

„Þetta eru allt flottir fiskar og við kunnum enga aðra skýringu en að við höfum sett á sleppi skyldu og þetta er þriðja árið sem hún er við líði. Við erum búin að vera með ána á leigu í þrjú ár og fyrsta árið okkar var ekkert af svona stórum fiski. Þetta er einkar gleðilegt,“ sagði Harpa Hlín Þórðardóttir í samtali við Sporðaköst síðdegis. 

Það glömruðu í henni tennurnar og hún viðurkenndi að það væri virkilega kalt. Ekki einasta frýs í lykkjum heldur frjósa vöðlurnar og „maður labbar eins og vélmenni,“ sagði hún.

Fjórtán fiskar veiddust á fyrri vaktinni og þau hjónin, hún og Stefán Sigurðsson voru búin að fá sex til viðbótar. Flestir fiskarnir hafa tekið púpur í andstreymisveiði en einnig hefur hin klassíska fluga Black Ghost gefið vel.

Frosið í lykkjum. Það er hægt að taka tvö köst …
Frosið í lykkjum. Það er hægt að taka tvö köst en þá þarf að brjóta ís úr lykkjunum svo flugulínan renni út. Ljósmynd/Aðsend

Þetta er mangaður viðsnúningur á Leirá því eins og fyrr segir var birtingurinn í frekar smár og þriggja punda fiskar algengir. Það er fyrirtæki þeirra hjóna Iceland Outfitters sem er með Leirá á leigu.

Þar sem er skóladagur þá voru börnin með og stunduðu fjarnám í veiðihúsinu.

Uppfært klukkan 19:15

Harpa með enn einn stóra birtingin úr þessari met opnun …
Harpa með enn einn stóra birtingin úr þessari met opnun í Leirá. Ljósmynd/Stefán

Veiðideginum í Leirá lauk með samtals 34 fiskum, sem er fáheyrð tala í Leirá og þó víðar væri leitað. Fiskarnir mældust á bilinu 45 til 82 sentímetrar og margir voru stórir, sagði Harpa hlín í samtali við Sporðaköst í lok dags og frosin inn að beini. Eins og Harpa benti á voru kjöraðstæður. Áin að ganga niður og þau hjónin þekkja bestu blettina.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert