Greinar föstudaginn 17. apríl 2009

Fréttir

17. apríl 2009 | Innlendar fréttir | 55 orð | 1 mynd

150 ára afmæli Prestbakkakirkju

SUMARDAGINN fyrsta, 23. apríl, kl. 14, fer fram hátíðar- og afmælismessa í Prestbakkakirkju í tilefni af 150 ára afmæli kirkjunnar. Einnig verður boðið upp á kaffi og meðlæti. Biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson, prédikar. Sr. Sigurður Sigurðsson, sr. Meira
17. apríl 2009 | Innlendar fréttir | 51 orð

550 vilja í álver Alcoa

YFIR 550 umsóknir bárust um auglýst sumarstörf hjá álveri Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði. Ráðið verður í um sextíu tímabundnar stöður framleiðslustarfsmanna og iðnaðarmanna. Umsóknir bárust hvaðanæva af landinu og flestar af höfuðborgarsvæðinu. Meira
17. apríl 2009 | Innlendar fréttir | 49 orð | 1 mynd

Andleg sjálfsvörn hjá Geðhjálp

Á MORGUN, laugardag, kl. 14-15, mun Sigursteinn Másson halda fyrirlestur um andlega sjálfsvörn, í húsi Geðhjálpar, Túngötu 7. Í fyrirlestrinum er farið yfir andlega heilsu og leiðir til að verjast neikvæðu andlegu áreiti, hugsunum eða samskiptum. Meira
17. apríl 2009 | Þingfréttir | 212 orð | 1 mynd

Á útleið og áberandi í umræðum

FREMUR fámennt hefur verið við umræður á þingfundum Alþingis seinustu daga. Margir þingmenn hafa verið uppteknir við kosningabaráttuna, enda stutt í kjördag. Meira
17. apríl 2009 | Erlendar fréttir | 87 orð

Borg sólarorkunnar

GERÐ hefur verið áætlun um að reisa 45.000 manna borg, Babcock Ranch, skammt frá Fort Myers á vesturströnd Flórída og framleiða allt rafmagn fyrir hana í 75 megavatta sólarorkuveri. Framkvæmdin öll kostar um tvo milljarða dollara. Meira
17. apríl 2009 | Erlendar fréttir | 92 orð

Brown biðst afsökunar

GORDON Brown, forsætisráðherra Bretlands, baðst í gær afsökunar á máli eins af helstu pólitísku ráðgjöfum sínum, Damian McBride, sem sagði af sér eftir að birtir voru tölvupóstar frá honum þar sem hann kvaðst ætla að hefja rógsherferð gegn forystumönnum... Meira
17. apríl 2009 | Erlendar fréttir | 293 orð | 2 myndir

Buðu ofbeldisseggjum birginn

Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is TUGIR milljóna manna buðu vopnuðum hreyfingum birginn í gær með því að taka þátt í fyrsta áfanga þingkosninga á Indlandi, fjölmennasta lýðræðisríki heims. Meira
17. apríl 2009 | Innlendar fréttir | 165 orð | 1 mynd

Börnin vernduð gegn ofbeldi

SAMÞYKKT var sem lög breytingin á barnaverndarlögunum á Alþingi í gær og er þar lagt fortakslaust bann við því að foreldrar eða aðrir sem bera ábyrgð á umönnun og uppeldi barns beiti það ofbeldi eða annarri vanvirðandi háttsemi, þar með talið andlegum... Meira
17. apríl 2009 | Innlendar fréttir | 45 orð | 1 mynd

Dansmeyjar Tignarlegar voru þær ballerínurnar úr Listdansskóla Íslands...

Dansmeyjar Tignarlegar voru þær ballerínurnar úr Listdansskóla Íslands sem dönsuðu Þyrnirós eftir Pjotr Tsjajkovskíj á sviði Háskólabíós við undirleik Sinfóníuhljómsveitar Íslands í gærmorgun. Meira
17. apríl 2009 | Innlendar fréttir | 84 orð | 1 mynd

Dregur úr vinnuslysum

Vinnuslysum hefur fækkað talsvert síðastliðna mánuði, samkvæmt tölum Vinnueftirlitsins. Fækkunin er hlutfallslega meiri en sem nemur samdrætti á vinnumarkaði. Meira
17. apríl 2009 | Innlendar fréttir | 499 orð | 2 myndir

Eddu-safn hvalreki fyrir Snorrastofu

Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is SNORRASTOFA í Reykholti hefur keypt Eddu-safn Eysteins Þorvaldssonar, íslenskufræðings og fyrrverandi prófessors við Kennaraháskóla Íslands. Meira
17. apríl 2009 | Innlendar fréttir | 71 orð | 1 mynd

Efni í Landeyjahöfn tekið á Seljalandsheiði

Á ANNAÐ þúsund rúmmetrar af fyllingarefni fara í Landeyjahöfn í Bakkafjöru. Um helmingur er grjót sem tekið er úr námu í Seljalandsheiði, annað efni er tekið á Markarfljótsaurum. Meira
17. apríl 2009 | Innlendar fréttir | 200 orð | 1 mynd

Eigandinn ber tjónið

EIGANDI kaskótryggðrar bifreiðar þarf sjálfur að bera tjón sem varð á bílnum í árekstri sem ökumaður bílsins varð valdur að í lok árs 2005. Ökumaðurinn hafði fengið bílinn að láni hjá eigandanum til reynsluaksturs vegna hugsanlegra kaupa. Meira
17. apríl 2009 | Innlendar fréttir | 72 orð

Eignir lífeyrissjóða minnka

Heildareignir lífeyrissjóðakerfisins til greiðslu lífeyris drógust saman um 1,4% í febrúar og hafa dregist saman um 12,7% frá því fyrir bankahrun. Meira
17. apríl 2009 | Innlendar fréttir | 632 orð | 2 myndir

Ekki rætt um það sem mestu skiptir

Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is Eitt erfiðasta verkefni nýrrar ríkisstjórnar, að loknum kosningum 25. apríl nk., verður að skipuleggja niðurskurð fyrir næsta fjárlagaár. Meira
17. apríl 2009 | Þingfréttir | 138 orð

Ekki taxtalækkun

„EKKI undir nokkrum kringumstæðum erum við að tala um að lækka almenna taxtalaunakerfið hjá hinu opinbera. Við viljum standa vörð um það kerfi. Meira
17. apríl 2009 | Innlendar fréttir | 111 orð

Fáir ætla aftur heim

AÐEINS 22% íslenskra námsmanna erlendis eru ákveðnir í að snúa aftur heim að námi loknu, skv. könnun á heimasíðu Sambands íslenskra námsmanna erlendis (SÍNE). 38% segjast ekki ætla að koma aftur heim en 40% eru óákveðin. Meira
17. apríl 2009 | Innlendar fréttir | 43 orð

Ferðafagnaður

Á MORGUN, laugardag, stendur Höfuðborgarstofa fyrir fjölda viðburða víða um land til að kynna ferðaþjónustu á Íslandi. Í boði eru allskonar viðburðir, ýmist ókeypis eða á vægu verði, t.d. útsýnisflug, lasertag, hestaferðir, hvalaskoðun og margt fleira. Meira
17. apríl 2009 | Innlendar fréttir | 124 orð | 2 myndir

Ferjuhöfn undirbúin

STARFSMENN Suðurverks hafa unnið allan sólarhringinn alla daga ársins við undirbúning Landeyjahafnar. Verkið er á áætlun, samkvæmt upplýsingum Dofra Eysteinssonar framkvæmdastjóra. Meira
17. apríl 2009 | Innlendar fréttir | 68 orð | 1 mynd

Fetuðu í fótspor látinnar dóttur í friðarmálum

Rachel Corrie var 23 ára þegar hún lét lífið á Gaza-svæðinu þegar jarðýta ók yfir hana er hún reyndi að aftra henni frá því að rífa niður heimili palestínskrar fjölskyldu. Meira
17. apríl 2009 | Innlendar fréttir | 228 orð | 1 mynd

Fleiri fjöll en Hnúkurinn

Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is FERÐIR á Hvannadalshnúk eru vinsælar sem aldrei fyrr og ljóst er að mörg hundruð Íslendingar munu klífa tindinn í vor og sumar. Meira
17. apríl 2009 | Þingfréttir | 101 orð

Fleiri listamenn fá laun

NÝ lög um fjölgun í hópi þeirra sem fá greidd listamannalaun, voru samþykkt á Alþingi í gær með 21 atkvæði gegn fjórum. Níu þingmenn greiddu ekki atkvæði. Verður mánaðarlaunum listamanna fjölgað á þriggja ára tímabili um alls 400. Starfslaun verða 266. Meira
17. apríl 2009 | Innlendar fréttir | 64 orð | 1 mynd

Framarar komu Haukum á óvart – öruggt hjá Val

Undanúrslitin á Íslandsmótinu í handknattleik karla, N1-deildinni, hófust í gær. Fram kom verulega á óvart með því að leggja Hauka, 32:28, á útivelli en það lið sem fyrr vinnur tvo leiki leikur til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn. Meira
17. apríl 2009 | Innlendar fréttir | 46 orð

Framhaldsskoli.is

NÝLEGA var opnaður námsvefurinn framhaldsskoli.is. Um er að ræða vef sem unninn er með þarfir framhaldsskólanna í huga. Vefurinn er fyrst og fremst hugsaður sem kennslu- og þjálfunarvefur fyrir framhaldsskólanema. Meira
17. apríl 2009 | Innlendar fréttir | 411 orð | 2 myndir

Færri vinnuslys tilkynnt

Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is SAMKVÆMT upplýsingum sem borist hafa Vinnueftirlitinu hefur vinnuslysum fækkað talsvert síðustu mánuði. Meira
17. apríl 2009 | Innlendar fréttir | 80 orð | 1 mynd

Grágæsin SLN komin

Blönduós | Grágæsin SLN er komin heim á Blönduós. Nú eins og að minnsta kosti sl. 10 ár þá hefur þessi frægasta gæs Blönduóss skilað sér heim frá Bretlandseyjum í hagana við Héraðshælið ásamt maka. Gæsin skilar sér ætíð heim í kringum 14. apríl ár... Meira
17. apríl 2009 | Innlendar fréttir | 175 orð | 1 mynd

Háskólanám verði metið til jafns við vinnu

Á FJÓRÐA hundrað manns mættu á borgarafund um menntamál sem breiðfylking námsmannahreyfinga stóð fyrir í Háskólabíói í gærkvöldi. Meira
17. apríl 2009 | Innlendar fréttir | 206 orð

Hirða ekki garðaúrgang

BORGARBÚAR þurfa sjálfir að fjarlægja úrgang eftir garðahreinsanir í vor því Reykjavíkurborg mun ekki sjá um að hirða garðaúrganginn upp líkt og verið hefur undanfarin ár. Með þessu áætlar framkvæmda- og eignasvið borgarinnar að spara 45 milljónir... Meira
17. apríl 2009 | Innlendar fréttir | 498 orð | 1 mynd

Karfaskipin í línudansi

Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is FYRSTU úthafskarfaskipin birtust á Reykjaneshrygg fyrir nokkrum dögum og þegar Landhelgisgæslan fór í eftirlitsflug á þriðjudagskvöld voru fimm skip komin á miðin, tveir Spánverjar, tveir Portúgalir og einn Rússi. Meira
17. apríl 2009 | Innlendar fréttir | 191 orð

Kvótakerfi ekki breytt

STEINGRÍMUR J. Sigfússon sjávarútvegsráðherra segist ekki sjá fram á að gerðar verði breytingar á úthlutun aflaheimilda á næsta fiskveiðiári sem hefst 1. september. Meira
17. apríl 2009 | Innlendar fréttir | 72 orð

Kynna skýrslu Evrópunefndar

SKÝRSLA nefndar ríkisstjórnarinnar um þróun Evrópumála verður kynnt á blaðamannafundi í dag. Nefndin fundaði í gær og á stuttan lokafund í dag, segir Ágúst Ólafur Ágústsson, annar tveggja formanna nefndarinnar. Meira
17. apríl 2009 | Innlendar fréttir | 162 orð

Leiðrétt

Sveitarstjórnir gera kjörskrár Ranghermt var í frétt í blaðinu s.l. miðvikudag, að Hagstofan gæfi út endanlegar kjörskrár vegna komandi alþingiskosninga. Meira
17. apríl 2009 | Erlendar fréttir | 158 orð | 1 mynd

Leitað að Kleópötru

KLEÓPATRA, drottning Egypta, og rómverski hershöfðinginn Markús Antoníus eru einir þekktustu elskendur sögunnar og nú standa vonir til að grafhýsi þeirra sé fundið. Meira
17. apríl 2009 | Innlendar fréttir | 196 orð

Mest notkun Tysabris hér á Norðurlöndunum

NOTKUN MS-lyfsins Tysabri er hlutfallslega langmest hér á landi sé miðað við annars staðar á Norðurlöndum. Sé viðmiðið milljón íbúar fá 150 lyfið hér, 86 í Danmörku, 78 í Svíþjóð, 38 í Noregi og 29 í Finnlandi. Meira
17. apríl 2009 | Innlendar fréttir | 388 orð | 4 myndir

Miðborg í sárum góðæris

Eftir Unu Sighvatsdóttur una@mbl.is HÚSIÐ á Vatnsstíg 4 sem tekið var pólitískri hústöku er eitt af tugum gamalla húsa sem staðið hafa auð og ónotuð mánuðum saman í miðborg Reykjavíkur. Meira
17. apríl 2009 | Innlendar fréttir | 221 orð | 1 mynd

Mikil hreyfing á fylgi flokkanna

Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is NÝ könnun Capacent Gallup á fylgi flokkanna sýnir litlar breytingar frá síðustu könnun sem gerð var 1.-7. apríl. VG sækir á en Sjálfstæðisflokkur og Samfylking dala. Meira
17. apríl 2009 | Þingfréttir | 337 orð

Mikill ágreiningur

EKKI náðist samkomulag í sérnefndinni um stjórnarskrármál, sem lauk umfjöllun sinni um stjórnarskrárfrumvarpið í gær. Sjálfstæðismenn skiluðu séráliti í nefndinni. Meira
17. apríl 2009 | Þingfréttir | 98 orð | 1 mynd

Mikil óvissa um þinglok

ENN er alls óvíst hvenær Alþingi lýkur störfum, þar sem ekki hefur náðst samkomulag um lokaafgreiðslu mála. Þingfundur er boðaður kl. 10 í dag. Í gær var dreift á þinginu þingsályktunartillögu forsætisráðherra um frestun á fundum þingsins frá 16. Meira
17. apríl 2009 | Innlendar fréttir | 121 orð

Mikil undiralda í umræðunni

MILLI 100 og 150 manns mættu í gærkvöldi á kynningarfund um áform hæstaréttarlögmannsins Björns Þorra Viktorssonar um að safna fólki saman að baki lögsóknar gegn bönkunum. Meira
17. apríl 2009 | Innlendar fréttir | 145 orð | 1 mynd

Neytendur ekki einir um skaðann

EKKI er eðlilegt, réttlátt eða jafnvel löglegt að neytendur beri einir skaðann af gengishruninu og verðbólgunni, segir talsmaður neytenda Gísli Tryggvason. Meira
17. apríl 2009 | Innlendar fréttir | 227 orð | 1 mynd

Ráðherra lofar að Líf fái að lifa

GESTKVÆMT var hjá hreindýrskálfinum Líf og fóstru hans, Dagbjörtu Briem Gísladóttur, þegar bæði Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra og Karl Karlsson, dýralæknir hjá Umhverfisstofnun, heimsóttu þær á Sléttu utan við Reyðarfjörð í gær. Meira
17. apríl 2009 | Innlendar fréttir | 86 orð | 1 mynd

Reiðhjólaviðgerðir fyrir ratleik

Íslenski fjallahjólaklúbburinn stendur fyrir margs konar starfsemi. Meðlimir klúbbsins hafa síðustu tvö fimmtudagskvöld getað komið í klúbbhúsið að Brekkustíg 2 í Reykjavík og fengið námskeið í reiðhjólaviðgerðum, sér að kostnaðarlausu. Meira
17. apríl 2009 | Innlendar fréttir | 507 orð | 3 myndir

Sjálfstæðisflokkur dalar en VG í sókn

Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl. Meira
17. apríl 2009 | Innlendar fréttir | 77 orð

Sjávarútvegsmiðstöð í HA

Í GÆR var undirritaður samningur milli Háskólans á Akureyri og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins um stofnun Sjávarútvegsmiðstöðvar við Háskólann á Akureyri. Meira
17. apríl 2009 | Innlendar fréttir | 91 orð

Snjóflóðavarnir og umhverfisáhrif

SKIPULAGSSTOFNUN hefur gefið álit sitt um mat á umhverfisáhrifum vegna snjóflóðavarna ofan Holtahverfis í Ísafjarðarbæ. Helstu niðurstöðurnar eru þær að fyrirhuguð snjóflóðamannvirki muni hafa jákvæð áhrif á öryggi íbúa. Meira
17. apríl 2009 | Innlendar fréttir | 79 orð | 1 mynd

Spennandi sprettganga

KEPPNI í sprettgöngu á Skíðamóti Íslands á Akureyri í gær var gríðarlega spennandi, bæði í kvenna- og karlaflokki. Meira
17. apríl 2009 | Innlendar fréttir | 455 orð | 2 myndir

Strandveiðar í stað byggðakvóta

Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegsráðherra ætlar ekki að úthluta byggðakvóta í sumar, en í stað þess leggur hann til að heimilaðar verði strandveiðar. Aðeins bátar undir 15 brúttótonnum mega stunda þessar veiðar. Meira
17. apríl 2009 | Erlendar fréttir | 51 orð | 1 mynd

Tendra elda til að ylja hinum látnu

KONUR kveikja elda í kirkjugarði þorpsins Salcia í Rúmeníu. Venja er að fólk safnist saman í kirkjugörðum landsins og kveiki í spreki við hverja gröf til að „ylja hinum látnu“ á skírdag sem var haldinn hátíðlegur í Rúmeníu í gær. Meira
17. apríl 2009 | Innlendar fréttir | 148 orð | 1 mynd

Tvö þúsund lítrar í loftinu

BARÁTTA við sinu- og gróðurelda auðveldast til muna með nýjum slökkvibúnaði sem tekinn var í notkun í gær. Um er að ræða 2.000 lítra tunnu með sleppibúnaði sem flogið er með í þyrlu yfir eldsvæði. Meira
17. apríl 2009 | Innlendar fréttir | 175 orð | 1 mynd

Úrskurða um listana fyrir klukkan þrjú

Landskjörstjórn mun í dag úrskurða hvort framboðslistar Lýðræðishreyfingarinnar í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur teljist gildir eða ekki. Meira
17. apríl 2009 | Innlendar fréttir | 138 orð | 1 mynd

Vampírudrengur talar

SÆNSKA vampírumyndin Let the Right One In hefur vakið verðskuldaða athygli um heim allan vegna frumlegrar nálgunar við formið, en myndin verður frumsýnd hérlendis í dag. Meira
17. apríl 2009 | Innlendar fréttir | 645 orð | 1 mynd

Viðmiðið er tvö megabit

Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur sia@mbl.is „FYRIRKOMULAG útboðsins var þannig að það voru boðnir út staðir, heimili eða vinnustaðir, með búsetu og starfsemi árið um kring utan markaðssvæða,“ segir Ottó V. Winther hjá Fjarskiptasjóði. Meira
17. apríl 2009 | Innlendar fréttir | 252 orð | 1 mynd

Viðvörunarskilti í Reynisfjöru

Eftir Jónas Erlendsson Fagridalur | Vegna slysahættu í Reynisfjöru í Mýrdal hefur verið sett upp skilti sem varar ferðamenn við að fara of nærri sjónum. Skiltið er á fimm tungumálum og myndskreytt. Meira
17. apríl 2009 | Innlendar fréttir | 338 orð | 1 mynd

Það sem skiptir þjóðina mestu

Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is Í DAG taka nemendur í flestum grunnskólum landsins til við að móta framtíðarsýn þjóðarinnar í samvinnu við foreldra sína. Meira
17. apríl 2009 | Innlendar fréttir | 111 orð | 1 mynd

Þorskkvóti ekki aukinn

STEINGRÍMUR J. Sigfússon sjávarútvegsráðherra gefur ekki vonir um aukningu þorskkvótans á næsta fiskveiðiári, þótt mælingar sýni að stofninn er að stækka. Meira
17. apríl 2009 | Innlendar fréttir | 380 orð | 3 myndir

Þorskstofninn kominn á rétta leið

Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is MÆLINGAR á þorskstofninum í togararalli í síðasta mánuði benda til þess að hann hafi stækkað um 9% frá því á sama tíma í fyrra. Meira
17. apríl 2009 | Innlendar fréttir | 213 orð | 1 mynd

Þúsundir sækja í sumarstörfin hjá borginni

ALLS hafa á fjórða þúsund sótt um tæplega 1.400 sumarstörf hjá Reykjavíkurborg. Garðyrkja, eldhússtörf, heimaþjónusta og vinna við umferðarmerkingar eru meðal starfanna sem auglýst eru á vef Reykjavíkurborgar fyrir sumarið. Meira

Ritstjórnargreinar

17. apríl 2009 | Staksteinar | 213 orð | 1 mynd

Eitt handfast svar

Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra sýndi lofsverða hreinskilni þegar hún lýsti því yfir á kosningafundi að lækka yrði laun ríkisstarfsmanna til að loka gatinu í ríkisfjármálum – auk þess að hækka skatta. Meira
17. apríl 2009 | Leiðarar | 773 orð

Ekki til umræðu?

Sum af stærstu kosningamálunum virðast ekki vera til umræðu í kosningabaráttunni. Furðulega lítið þannig fer fyrir umræðum um hvernig flokkarnir hyggjast ná jafnvægi í ríkisfjármálunum. Meira

Menning

17. apríl 2009 | Tónlist | 74 orð | 1 mynd

Animal Hospital í 12 Tónum í dag

TÓNLISTARMAÐURINN Kevin Micka, sem gefur út undir listamannsnafninu Animal Hospital, heldur tónleika í 12 Tónum, Skólavörðustíg 15, í dag. Animal Hospital hefur gefið út þrjár plötur í fullri lengd auk þess að hafa átt lög á fjölmörgum safnplötum. Meira
17. apríl 2009 | Fólk í fréttum | 119 orð | 1 mynd

Aniston nógu ellileg?

BANDARÍSKA leikkonan Jennifer Aniston er sögð ósátt við að vera ekki gerð ellilegri með hjálp förðunarmeistara í sinni nýjustu kvikmynd, The Baster . Í myndinni leikur Aniston, sem er fertug, 48 ára gamla konu sem þráir ekkert heitar en að eignast barn. Meira
17. apríl 2009 | Leiklist | 246 orð | 1 mynd

Björn Hlynur stöðugt spurður um skeggvöxtinn

Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „NÚ fer maður að koma undan vetri, og fer að losa sig við þetta,“ segir Björn Hlynur Haraldsson leikari sem hefur vakið mikla athygli fyrir vígalegan skeggvöxt að undanförnu. Meira
17. apríl 2009 | Tónlist | 435 orð | 1 mynd

Eru sjálfar farfuglar

Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is „VIÐ fögnum komu farfuglanna á tónleikunum. Það er viðeigandi á þessum tíma þegar þeir flykkjast til landsins. Svo erum við erum eiginlega farfuglar sjálfar,“ segir Melkorka Ólafsdóttir flautuleikari. Meira
17. apríl 2009 | Kvikmyndir | 166 orð | 1 mynd

Fjölbreyttir bíódagar

AUK þess sem Bíódagar Græna ljóssins hefjast í dag með frumsýningu á sjö kvikmyndum verða tvær kvikmyndir frumsýndar í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina. Meira
17. apríl 2009 | Tónlist | 137 orð | 1 mynd

Fjölhæfir fjörkálfar

Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is FÉLAGARNIR Mickaël Téo og James Duncan skipa tvíeykið The Fancy Toys, en þeir eru staddir hér á landi í kynningar- og skemmtiferð. Meira
17. apríl 2009 | Myndlist | 359 orð | 1 mynd

Galdur listamanns

Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is GALDRASTAFIR nefnist sýning sem opnuð verður klukkan 17 í dag í Gallery Turpentine að Skólavörðustíg 14, 2. hæð. Meira
17. apríl 2009 | Bókmenntir | 122 orð | 1 mynd

Gefa út sagnabrot

Rithöfundurinn Kurt Vonnegut lést árið 2007 en nú undirbýr útgefandi hans, Delacorte Press, útgáfu 14 áður óbirtra smásagna eftir höfundinn sem frægastur er fyrir skáldsöguna Sláturhús fimm . Meira
17. apríl 2009 | Fólk í fréttum | 45 orð | 1 mynd

Heitasta tónlistarbloggið í dag

* Nýjasta lag hljómsveitarinnar Hjaltalín var í fyrradag boðið til frís niðurhals á tónlistarbloggsíðu Árna Þórs Jónssonar kvikmyndagerðarmanns og tónlistarspekúlants (syrdurrjomi.blogspot.com). Meira
17. apríl 2009 | Tónlist | 98 orð

Hætta við tónleikaferð

THE BOSTON Symphony-Orchestra hefur blásið af tónleikaferð sem hljómsveitin hafði ráðgert um nokkur Evrópulönd á næsta ári, og þar á meðal tónleika í París og Vínarborg. Meira
17. apríl 2009 | Fólk í fréttum | 102 orð | 1 mynd

Í vímu með Snoop

BRESKA söngkonan Amy Winehouse reykti svo mikið af kannabisefnum með bandaríska rapparanum Snoop Dogg að hún gat ekkert sungið þegar taka átti upp tvö lög með parinu. Meira
17. apríl 2009 | Kvikmyndir | 656 orð | 2 myndir

Kókaín-kúrekar snúa aftur

Eftir Höskuld Ólafsson hoskuldur@mbl.is HEIMILDARMYNDIN Cocain Cowboys II: Hustlin' with the Godmother verður frumsýnd í dag á Bíódögum Græna ljóssins. Meira
17. apríl 2009 | Tónlist | 95 orð | 1 mynd

K-tríó á Café Cultura í kvöld

JAZZTRÍÓIÐ K-tríó heldur tónleika í kjallara Café Cultura, Hverfisgötu 18, kl. 21 í kvöld. Á tónleikunum verður frumflutt nýtt efni. Um miðjan september tók K-tríó þátt í Young Nordic Jazz Comets fyrir Íslands hönd og stóð uppi sem sigurvegari. Meira
17. apríl 2009 | Fjölmiðlar | 199 orð | 1 mynd

Lang var það heillin

NÁTTÚRUFEGURÐ Kína hefur notið sín vel í BBC þáttunum Villta Kína sem Sjónvarpið sýnir á mánudögum. Það er skemmtilegt að fá að fræðast um ótrúlegan fjölbreytileika og fegurð þessa lands sem jafnan er helst í fréttum fyrir mengun og mannréttindabrot. Meira
17. apríl 2009 | Fólk í fréttum | 95 orð | 1 mynd

Laufgaðar krónur á Sódómu Reykjavík

*Leaves hélt tónleika á Sódómu Reykjavík í fyrradag og ekki var að sjá á frammistöðu hennar að hún væri að skríða úr híði. Leaves-liðar léku langt og gott sett og drógu fram lög af tveimur fyrri breiðskífum sínum og svo væntanlegri plötu. Meira
17. apríl 2009 | Fólk í fréttum | 287 orð | 1 mynd

Metallica er EKKI metal!

Aðalsmaður þessarar viku er þungarokksgúrúinn Þorsteinn Kolbeinsson en hann stendur fyrir þungarokkshljómsveitakeppni nú um helgina. Meira
17. apríl 2009 | Tónlist | 82 orð | 1 mynd

Nordic Affect heiðrar Händel

UM þessar mundir er 250 ára ártíðar Georges Friderics Händels minnst víða um heim, en Händel, sem er eitt þekktasta tónskáld barokktímans, lést í Lundúnum 14. apríl 1759. Meira
17. apríl 2009 | Bókmenntir | 508 orð | 2 myndir

Notagildi pappírs

Í greinasafninu „ Due Considerations: Essays and Criticism “ ræðir John Updike sálugi bækur og mærir pappír eins og gamalla manna er siður; finnst það ferleg tilhugsun að hugsanlega eigi pappírinn eftir að fara sömu leið og papírusinn. Meira
17. apríl 2009 | Myndlist | 421 orð | 1 mynd

Opnað og lokað

Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is ÓVENJULEGT lokunarpartí verður haldið í Kling og Bang galleríi á morgun. Sýningin „Opið-til eru hræ“ (ó)opnaði í gallerínu þann 21. mars og verður lokað um helgina loksins fullunnin. Meira
17. apríl 2009 | Fólk í fréttum | 175 orð | 1 mynd

Ósátt við Hulk

LINDA, fyrrverandi eiginkona bandaríska fjölbragðaglímukappans Hulks Hogan, er afar ósátt við að kappinn hafi sagt að hann skilji menn sem myrði eiginkonur sínar. Linda sagði skilið við Hogan árið 2007 vegna meints framhjáhalds hans. Meira
17. apríl 2009 | Kvikmyndir | 514 orð | 1 mynd

Viðtal við sænska vampíru

Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is MYNDIN kallast á frummálinu Låt den rätte komma in og er að forminu til hryllingsmynd/vampírumynd. Inn í hana fléttast þó vel ígrundaðar samfélagslegar pælingar og sterk ástarsaga. Meira
17. apríl 2009 | Fólk í fréttum | 167 orð | 1 mynd

Vill ekki giftast Kournikovu

SPÆNSKI söngvarinn Enrique Iglesias segist ekki ætla að giftast unnustu sinni, tenniskonunni og fyrirsætunni Önnu Kournikovu, að minnsta kosti ekki í bráð. Meira
17. apríl 2009 | Fólk í fréttum | 49 orð | 1 mynd

Þéttur pakki á Grandinu í kvöld

* Sprengjuhöllin og Sin Fang Bous troða upp á Grand Rokk í kvöld undir merkjum Grapevine og Gogoyoko en á undan þeim hyggst Haukur Heiðar söngvari Diktu leika nýtt sóló-efni sem hann hefur verið að undirbúa fyrir fína og fræga fólkið í Hollywood, en... Meira
17. apríl 2009 | Kvikmyndir | 559 orð | 2 myndir

Þraukað á þunnum ís

Leikstjóri: Courtney Hunt. Aðalleikarar: Melissa Leo, Misty Upham, Charlie McDermott, James Reilly. 105 mín. Bandaríkin. 2008. Meira

Umræðan

17. apríl 2009 | Aðsent efni | 288 orð | 1 mynd

Aðgerðir fyrir heimilin strax!

Eftir Ingifríði Rögnu Skúladóttur: "AF HVERJU er sú staða komin upp í íslensku samfélagi að fullorðið fólk má horfa á eftir sparifé sínu í sukk fjárglæframanna?" Meira
17. apríl 2009 | Aðsent efni | 269 orð | 1 mynd

Að njóta lífsins – heima

Eftir Ólaf Þór Gunnarsson: "UNDANFARIN ár hefur farið fram mikil umræða um hvernig eigi að taka á þeim „vanda“ sem hljótist af því að þjóðin eldist." Meira
17. apríl 2009 | Aðsent efni | 178 orð

Allt upp á borðið?

UNDANFARNA daga hefur mikið verið rætt um ofurstyrki FL-Group og Landsbankans til Sjálfstæðisflokksins síðla árs 2006, augnabliki áður en leidd var í lög 300.000 kr. hámarksupphæð styrkja af þessu tagi. Það viðmið hefur varla verið sett að... Meira
17. apríl 2009 | Pistlar | 433 orð | 1 mynd

Á meðan ljósin eru slökkt

Ef einhver stelur frá þér hlut getur þú brugðið á eitt gamalt ráð. Það felst í að gefa þjófnum kost á að skila hlutnum án þess að upp um hann komist. Meira
17. apríl 2009 | Aðsent efni | 297 orð | 1 mynd

Brúin yfir kreppu

Eftir Þórunni Sveinbjarnardóttur: "SAMFYLKINGIN leggur höfuðáherslu á það í störfum sínum að brúa tímabil erfiðleika fyrir heimili og fyrirtæki með ábyrgum og markvissum hætti. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar miða allar að því aðstoða þá sem eiga í fjárhagserfiðleikum með skipulegum hætti." Meira
17. apríl 2009 | Blogg | 135 orð | 1 mynd

Eggert Þór Aðalsteinsson | 16. apríl 2009 Borgun lætur aðra borga...

Eggert Þór Aðalsteinsson | 16. apríl 2009 Borgun lætur aðra borga brúsann Borgun brýst fram á sjónarsviðið þessa dagana með auglýsingar sem lýsa ágætlega því viðhorfi sem gömlu greiðslukortafyrirtækin hafa haft gagnvart seljendum. Meira
17. apríl 2009 | Aðsent efni | 304 orð | 1 mynd

Er mennt máttur?

Eftir Aðalstein Kjartansson: "ÉG ER hluti af menntakerfi í samfélagi sem predikar stöðugt að mennt sé máttur. Það er því skýrt að menntunin sem ég hlýt í menntakerfinu eigi að vera stökkpallur minn út í lífið." Meira
17. apríl 2009 | Aðsent efni | 876 orð | 4 myndir

Eru breskir þingmenn bjargvættir Íslendinga?

Eftir Ólaf Elíasson, Agnar Helgason, Jóhannes Þ. Skúlason og Torfa Þórhallsson: "Hvernig ætli landhelgisdeilurnar hefðu endað ef „mjúka leiðin“ hefði verið farin í samningum við Breta?" Meira
17. apríl 2009 | Aðsent efni | 783 orð | 1 mynd

Exeter Holdings ehf.

Ágúst Sindri Karlsson fjallar um viðskipti Exeter Holdings: "Á síðustu dögum hefur Exeter Holdings ehf. verið í umræðunni. Greinin leiðréttir rangfærslur og leggur nýjar línur fyrir framtíð Byrs sparisjóðs." Meira
17. apríl 2009 | Aðsent efni | 325 orð | 1 mynd

Framsóknarflokkurinn – ESB og gjaldmiðillinn

Eftir Fannýju Gunnarsdóttur: "LANDSMENN hafa nú árum saman rætt fram og til baka um Ísland, Evrópubandalagið og upptöku evru. Sitt sýnist hverjum, ólíkir hagsmunir togast á en það er á engan hátt óeðlilegt þegar horft er til þeirra skuldbindinga sem fylgja." Meira
17. apríl 2009 | Aðsent efni | 126 orð

Launafólkið og Ögmundur

EÐLILEGA brá mörgum, þegar Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra lýsti því yfir nú í vikunni, að gera ætti hvort tveggja í senn að lækka laun opinberra starfsmanna og hækka skatta. Meira
17. apríl 2009 | Aðsent efni | 306 orð | 1 mynd

Lýðræði og heiðarleiki – nú eða aldrei

Eftir Þráin Bertelsson: "TAKMARK Borgarahreyfingarinnar er að færa völdin frá flokksræði til lýðræðis." Meira
17. apríl 2009 | Aðsent efni | 326 orð | 1 mynd

Minnkun atvinnuleysis

Eftir Ástu Hafberg Sigmundsdóttur: "STÆRSTA verkefnið fram undan er atvinnuleysið í landinu. Því miður er það svo að ekki er bara kreppa skollin á. Staðreyndin er sú að stjórnvöld hafa ekki verið með markvissa atvinnu-uppbyggingu á landsvísu." Meira
17. apríl 2009 | Aðsent efni | 791 orð | 1 mynd

Opið bréf til forsætisráðherra, frambjóðenda og kjósenda

Baldur Ágústsson kallar eftir svörum frá forsætisráðherra: "Kosning án nákvæmrar lýsingar á því neyðarástandi sem ríkir og valkosta í lausnum gerir lítið annað en festa valdaglaða menn og konur á þingi til fjögurra ára." Meira
17. apríl 2009 | Aðsent efni | 514 orð | 1 mynd

Sjálfbær raforkuframleiðsla OR

Guðlaugur G. Sverrisson skrifar um málefni Orkuveitu Reykjavíkur: "Íslenskir vísindamenn ásamt verk- og tæknifræðingum hafa náð einstökum árangri við að finna, meta og yrkja jarðhitasvæði á Íslandi." Meira
17. apríl 2009 | Blogg | 173 orð | 1 mynd

Sóley Tómasdóttir | 15. apríl 2009 Heimafæðingar Í Hollandi eru konur...

Sóley Tómasdóttir | 15. apríl 2009 Heimafæðingar Í Hollandi eru konur hvattar til að fæða heima, ef móður og fóstri heilsast vel. Þar fer fólk nefnilega bara á spítala ef það veikist og þarf á lækningu að halda. Meira
17. apríl 2009 | Aðsent efni | 299 orð | 1 mynd

Umhverfi, atvinna, friðlýsing og framtíðarsýn

Eftir Kolbrúnu Halldórsdóttur: "MERK viljayfirlýsing var undirrituð miðvikudaginn 8. apríl í Skansinum á Álftanesi." Meira
17. apríl 2009 | Aðsent efni | 362 orð | 1 mynd

Um skattahækkanir

Björn Dagbjartsson fjallar um skattamál: "Hversu oft sem við segjumst vera á móti skattahækkunum eru þær að mínu viti algerlega óhjákvæmilegar núna. En það er ekki sama hvernig það er gert." Meira
17. apríl 2009 | Velvakandi | 310 orð | 2 myndir

Velvakandi

Þakklæti til þeirra sem fundu Brand ÉG vil koma á framfæri þakklæti til þess heiðursfólks sem fann köttinn minn, Brand, dáinn niðri í Tjarnargötu og fór með hann upp á dýraspítala til þess að finna út hver væri eigandinn. Meira

Minningargreinar

17. apríl 2009 | Minningargreinar | 1254 orð | 1 mynd

Anna Andrésdóttir

Anna Andrésdóttir fæddist 21. desember 1919 að Bæ í Kjós. Hún lést á Landspítalanun við Hringbraut þann 8. apríl sl. Foreldrar hennar voru Andrés Ólafsson bóndi, f. 1868, d. 1931, og kona hans Ólöf Gestsdóttir, f. 1883, d. 1966. Meira  Kaupa minningabók
17. apríl 2009 | Minningargrein á mbl.is | 1180 orð | 1 mynd | ókeypis

Björg Jónsdóttir

Björg Jónsdóttir fæddist á Rauðabergi á Mýrum þann 14. september 1922. Hún lést á Hjúkrunardeild Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands Hornafirði þann 8. apríl s.l. Foreldrar hennar voru hjónin Halldóra Guðmundsdóttir húsmóðir, f. í Hoffelli 1.6. 1901, d. Meira  Kaupa minningabók
17. apríl 2009 | Minningargreinar | 1503 orð | 1 mynd

Björg Jónsdóttir

Björg Jónsdóttir fæddist á Rauðabergi á Mýrum þann 14. september 1922. Hún lést á hjúkrunardeild Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands, Hornafirði, þann 8. apríl sl. Foreldrar hennar voru hjónin Halldóra Guðmundsdóttir húsmóðir, f. í Hoffelli 1.6. 1901,... Meira  Kaupa minningabók
17. apríl 2009 | Minningargrein á mbl.is | 744 orð | 1 mynd | ókeypis

Eggert Þór Steinþórsson

Eggert Þór Steinþórsson fæddist í Stykkishólmi 4. janúar 1945. Hann lést á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut 8. apríl síðastliðinn. Meira  Kaupa minningabók
17. apríl 2009 | Minningargreinar | 1329 orð | 1 mynd

Eggert Þór Steinþórsson

Eggert Þór Steinþórsson fæddist í Stykkishólmi 4. janúar 1945. Hann lést á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut 8. apríl síðastliðinn. Foreldrar hans eru Steinþór Viggó Þorvarðarson og Halldóra Jónsdóttir, búsett í Stykkishólmi. Meira  Kaupa minningabók
17. apríl 2009 | Minningargreinar | 929 orð | 1 mynd

Erlingur Ottósson

Erlingur Ottósson (Albrektsen) fæddist í Borup á Sjálandi í Danmörku 12. mars 1928. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 11. apríl 2009. Foreldrar hans voru Inger Marie Albrektsen og Otto Anton Albrektsen. Meira  Kaupa minningabók
17. apríl 2009 | Minningargrein á mbl.is | 373 orð | 1 mynd | ókeypis

Erlingur Ottósson

Erlingur Ottósson (Albrektsen) fæddist í Borup á Sjálandi í Danmörku 12. mars 1928. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 11. apríl síðastliðinn. Meira  Kaupa minningabók
17. apríl 2009 | Minningargreinar | 1712 orð | 1 mynd

Frans Magnússon

Frans Magnússon fæddist í Búdapest í Ungverjalandi 27. maí 1937. Hann lést á Sjúkrahúsi Akraness 7. apríl síðastliðinn. Foreldrar hans voru Magyar Ferenc og Magyar Emelia, þau eru bæði látin. Frans kom úr stórum systkinahóp, þau voru 11 talsins. Meira  Kaupa minningabók
17. apríl 2009 | Minningargrein á mbl.is | 1010 orð | 1 mynd | ókeypis

Frans Magnússon

Frans Magnússon fæddist í Búdapest í Ungverjalandi 27. maí 1937. Hann lést á Sjúkrahúsi Akraness 7. apríl síðastliðinn. Foreldrar hans voru Magyar Ferenc og Magyar Emelia, þau eru bæði látin. Frans kom úr stórum systkinahóp, þau voru 11 talsins. Meira  Kaupa minningabók
17. apríl 2009 | Minningargreinar | 1715 orð | 1 mynd

Guðrún Helga Högnadóttir

Guðrún Helga Högnadóttir fæddist 18.3. 1931 á Landspítalanum í Reykjavík. Hún lést á Elliheimilinu Grund 9.4. 2009. Foreldrar hennar voru hjónin Högni Eyjólfsson rafvirki, f. í Reykjavík 19. júní 1905, d. 22. Meira  Kaupa minningabók
17. apríl 2009 | Minningargreinar | 544 orð | 1 mynd

Inga Torfhildur Magnúsdóttir

Inga Torfhildur Magnúsdóttir fæddist í Reykjavík 28.6. 1918. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Eir laugardaginn 11. apríl sl. Foreldrar hennar voru Magnús Einarsson verkamaður í Reykjavík f. 30.9. 1874 á Arnarstöðum í Hraungerðishreppi, d. 25.3. Meira  Kaupa minningabók
17. apríl 2009 | Minningargreinar | 1219 orð | 1 mynd

Ingibjörg Jónsdóttir

Ingibjörg Jónsdóttir var fædd 31. mars 1914 í Tungukoti í Kirkjuhvammshreppi í V-Húnavatnssýslu. Hún lést á Dvalarheimilinu Grund 5. apríl 2009. Foreldrar hennar voru Ósk Bjarnadóttir, fædd á Harastöðum, Breiðabólstaðarsókn, V-Hún., f. 7.11. 1875, d.... Meira  Kaupa minningabók
17. apríl 2009 | Minningargrein á mbl.is | 457 orð | 1 mynd | ókeypis

Ingibjörg Jónsdóttir

Ingibjörg Jónsdóttir var fædd 31. mars 1914 í Tungukoti í Kirkjuhvammshreppi V- Húnavatnssýslu. Hún lést á Dvalarheimilu Grund 5. apríl 2009. Foreldrar hennar voru Ósk Bjarnadóttir, fædd á Harastöðum, Breiðabólstaðarsókn, V-Hún. 7. Meira  Kaupa minningabók
17. apríl 2009 | Minningargreinar | 5506 orð | 2 myndir

Ingólfur Guðbrandsson

Ingólfur Guðbrandsson fæddist á Kirkjubæjarklaustri 6. mars 1923. Hann lést á Landspítalanum 3. apríl sl. Foreldrar hans voru Guðrún Auðunsdóttir húsmóðir, f. 1895, d. 1973 og Guðbrandur Guðbrandsson bóndi á Prestbakka á Síðu, f. 1892, d. 1981. Meira  Kaupa minningabók
17. apríl 2009 | Minningargrein á mbl.is | 2334 orð | 1 mynd | ókeypis

Ingólfur Guðbrandsson

Ingólfur Guðbrandsson fæddist á Kirkjubæjarklaustri 6. mars 1923. Hann lést á Landspítalanum 3. apríl sl. Foreldrar hans voru Guðrún Auðunsdóttir húsmóðir, f. 1895, d. 1973 og Guðbrandur Guðbrandsson bóndi á Prestbakka á Síðu, f. 1892, d. 1981. Meira  Kaupa minningabók
17. apríl 2009 | Minningargreinar | 1295 orð | 1 mynd

Margrét Ögmundsdóttir

Margrét Ögmundsdóttir fæddist í Vestmannaeyjum 9. ágúst 1925. Hún lést á líknardeild Landakotsspítala 8. apríl síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Guðrún Jónsdóttir, f. 17.5. 1899, d. 16.3. 1992 og Ögmundur Ólafsson, f. 6.6. 1894, d. 29.9. 1995. Meira  Kaupa minningabók
17. apríl 2009 | Minningargreinar | 1656 orð | 1 mynd

Ólafur Helgi Kristjánsson

Ólafur Helgi Kristjánsson, fyrrverandi skólastjóri Reykjaskóla í Hrútafirði, fæddist á Þambárvöllum í Bitrufirði, Strandasýslu, þann 11. desember 1913. Hann andaðist á Vífilsstöðum 5. apríl síðastliðinn. Meira  Kaupa minningabók
17. apríl 2009 | Minningargrein á mbl.is | 2218 orð | 1 mynd | ókeypis

Ólafur Helgi Kristjánsson

Ólafur Helgi Kristjánsson, fyrrverandi skólasjóri Reykjaskóla í Hrútafirði, fæddist á Þambárvöllum í Bitrufirði, Strandasýslu þann 11. desember 1913. Hann andaðist á Vífilsstöðum 5. apríl síðastliðinn. Meira  Kaupa minningabók
17. apríl 2009 | Minningargrein á mbl.is | 2269 orð | 1 mynd | ókeypis

Sigurður Þorleifsson

Æviágrip Sigurðar Þorleifssonar frá Karlsstöðum. Sigurður Þorleifsson fæddist 18. nóvember 1930 að Fossgerði í Beruneshreppi og lést þann 5. apríl 2009 að heimili sínu Boðahlein 22 í Garðabæ. Meira  Kaupa minningabók
17. apríl 2009 | Minningargreinar | 1382 orð | 1 mynd

Sjöfn Jóhannsdóttir

Sjöfn Jóhannsdóttir fæddist í Fremri- Langey á Breiðarfirði 25. október 1919. Hún lést á Sólvangi 6. apríl síðastliðinn. Sjöfn var dóttir Jóhanns Garðars Jóhannssonar, verkamanns og smiðs í Reykjavík, f. í Öxney á Breiðafirði 15.11. 1884, d. 21.2. Meira  Kaupa minningabók
17. apríl 2009 | Minningargreinar | 1059 orð | 1 mynd

Ævar Rögnvaldsson

Ævar Rögnvaldsson fæddist á Blönduósi 26. apríl 1938. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 10. apríl sl. Foreldrar Ævars voru Helga Sigríður Valdimarsdóttir, f. 1913, og Rögnvaldur Sumarliðason, f. 1913, þau eru bæði látin. Meira  Kaupa minningabók
17. apríl 2009 | Minningargrein á mbl.is | 649 orð | 1 mynd | ókeypis

Ævar Rögnvaldsson

Ævar Rögnvaldsson fæddist á Blönduósi 26. apríl 1938. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 10. apríl sl. Foreldrar Ævars voru Helga Sigríður Valdimarsdóttir, f. 1913, og Rögnvaldur Sumarliðason, f. 1913, þau eru bæði látin. Meira  Kaupa minningabók

Viðskipti

17. apríl 2009 | Viðskiptafréttir | 80 orð | 1 mynd

Engin stefna frá Kaupþingi birt Samson

SAMSON, eignarhaldsfélagi Björgólfsfeðga, hefur ekki verið birt stefna vegna fimm milljarða skuldar við Nýja Kaupþing, að sögn Ásgeirs Friðgeirssonar, talsmanns Samson. Í Fréttablaðinu hinn 9. Meira
17. apríl 2009 | Viðskiptafréttir | 204 orð | 1 mynd

Enn á eftir að afskrifa töluvert af skuldabréfum

Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is HREIN eign lífeyrissjóðakerfisins til greiðslu lífeyris minnkaði um 1,4% í febrúar, samkvæmt tölum frá Seðlabanka Íslands. Tölurnar eru byggðar á upplýsingum, sem lífeyrissjóðirnir veita Seðlabankanum. Meira
17. apríl 2009 | Viðskiptafréttir | 227 orð | 1 mynd

Kröfuhafar ráða Landic Property

Eftir Þórð Snæ Júlíusson t hordur@mbl.is KRÖFUHAFAR fasteignafélagsins Landic Property hf. hafa tekið yfir stjórn þess og vinna nú að endurskipulagningu ásamt stjórnendum félagsins. Meira
17. apríl 2009 | Viðskiptafréttir | 52 orð

Landic selur fasteignir

Landic Property seldi finnskt fast eignasafn sitt og skrifaði undir samning um sölu á dönskum og sænskum dótturfélögum sínum skömmu áður en félagið óskaði eftir greiðslustöðvun í gær. Meira
17. apríl 2009 | Viðskiptafréttir | 69 orð

Raunverulegt atvinnuleysi 15,6%

SAMKVÆMT tölum vinnumálaráðuneytisins bandaríska um atvinnuleysi er það nú komið í 8,5%. Þegar horft er hins vegar til þeirra, sem hættir eru að leita sér að vinnu, eða hafa þurft að minnka við sig vinnu nemur atvinnuleysið 15,6%. Meira
17. apríl 2009 | Viðskiptafréttir | 134 orð | 1 mynd

Skýrslunni ekki skilað

FULLNAÐARÚTGÁFU skýrslu Olivers Wymans um samhæft endurmat á Nýja Landsbankanum (NBI), Nýja Kaupþingi og Íslandsbanka hefur enn ekki verið skilað inn til Fjármálaeftirlitsins (FME). Meira
17. apríl 2009 | Viðskiptafréttir | 281 orð | 1 mynd

Smærri stofur heltast úr lestinni

Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is ÍSLENSKAR auglýsingastofur fóru í naflaskoðun í sínum rekstri í haust í kjölfar bankahrunsins þegar stórir auglýsendur hurfu af markaðnum. Meira
17. apríl 2009 | Viðskiptafréttir | 78 orð | 1 mynd

Tugir mála í sigti sérstaks saksóknara

Embætti sérstaks saksóknara er með nokkra tugi mála í sigtinu samkvæmt heimildum Morgunblaðsins . Nokkrir hafa fengið réttarstöðu grunaðra en ekki fæst uppgefið hversu margir þeir eru. Meira
17. apríl 2009 | Viðskiptafréttir | 85 orð

Verðhjöðnun í Bordeaux-héraði

Víðar er verðhjöðnun en í Bandaríkjunum. Nýlega hófst hin fornfræga árlega forsala á Bordeaux-vínum. Árgangurinn 2008 þykir sambærilegur við þá sem framleiddir voru 2006 og 2007, en þrátt fyrir það er hann seldur á mun lægra verði. St. Meira

Daglegt líf

17. apríl 2009 | Daglegt líf | 121 orð

Af þunga og kosningum

Það hefur aldrei tíðkast að Íslendingar sitji heima á kjördag. Einar Sigurðsson bóndi á Reykjarhóli orti fyrir rúmri öld um mann sem lét það henda sig: Keyptur var að kúra heima á kjörfundinn vildi'ei sveima, sjálfum sér til mæðu' og meins. Meira
17. apríl 2009 | Daglegt líf | 451 orð | 2 myndir

„Hjá okkur eru engin leyndarmál“

Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is Ef þú flytur í nýtt samfélag þá skaltu endilega ganga í kvenfélag því þá kynnist þú strax fólki á öllum aldri og af breiðum þjóðfélagsgrunni. Meira
17. apríl 2009 | Daglegt líf | 52 orð | 1 mynd

Hárfín vinnubrögð

Í HEIMI hárgreiðslunnar er allt leyfilegt. Sérstaklega þegar um sýningar fyrir framan áhorfendur er að ræða. Þá ganga hárgreiðsluhönnuðir oft lengra en þeir myndu gera á stofunum sínum. Hártískusýning fór nýverið fram í Rúmeníu. Meira
17. apríl 2009 | Daglegt líf | 769 orð | 1 mynd

Tækifærin felast líka í harmleikjum

Cindy og Craig Corrie eru nú stödd hér á landi til að sjá íslenska uppfærslu leikritsins Ég heiti Rachel Corrie sem fjallar um líf dóttur þeirra sem lést voveiflega fyrir sex árum á Gazasvæðinu. Meira

Fastir þættir

17. apríl 2009 | Árnað heilla | 15 orð | 1 mynd

80 ára

Áttræður er í dag Vilhjálmur Vilmundarson, Barðastöðum 7, Reykjavík. Hann verður að heiman í... Meira
17. apríl 2009 | Fastir þættir | 149 orð

BRIDS - Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is

Feðgarnir. Norður &spade;5 &heart;1098 ⋄ÁD1043 &klubs;KDG7 Vestur Austur &spade;8632 &spade;Á &heart;62 &heart;KD743 ⋄K752 ⋄G986 &klubs;963 &klubs;Á105 Suður &spade;KDG10974 &heart;ÁG5 ⋄-- &klubs;842 Suður spilar 4&spade;. Meira
17. apríl 2009 | Í dag | 28 orð

Orð dagsins: Og ég veit að boðorð hans er eilíft líf. Það sem ég tala...

Orð dagsins: Og ég veit að boðorð hans er eilíft líf. Það sem ég tala, það tala ég því eins og faðirinn hefur sagt mér. (Jh. 12, 50. Meira
17. apríl 2009 | Fastir þættir | 175 orð | 1 mynd

SKÁK - Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is

1. c4 d6 2. Rc3 e5 3. g3 Rc6 4. Bg2 f5 5. d3 Rf6 6. Rf3 Be7 7. 0-0 0-0 8. Hb1 Rd4 9. Rxd4 exd4 10. Rd5 Rxd5 11. cxd5 Bd7 12. b4 De8 13. Db3 Hc8 14. b5 Bf6 15. He1 Kh8 16. Db4 De5 17. f4 De7 18. Bb2 De3+ 19. Kf1 h5 20. Bf3 h4 21. Kg2 Hg8 22. Bc1 De8 23. Meira
17. apríl 2009 | Árnað heilla | 188 orð | 1 mynd

Stefnir á að ganga á 151 tind

GERÐUR Steinþórsdóttir er 65 ára í dag og er í tilefni dagsins boðið í mat hjá frænku sinni Guðrúnu Eggertsdóttur: „Við erum systradætur.“ Hún hyggur einnig á að hitta sína nánustu á kaffihúsi. Meira
17. apríl 2009 | Fastir þættir | 285 orð

Víkverjiskrifar

Víkverji sá á dögunum kvikmyndina um Baader Meinhof hryðjuverkahópinn þýzka. Margt var þar vel gert og gaf að mati Víkverja nokkuð glögga mynd af raunveruleikanum. Meira
17. apríl 2009 | Í dag | 161 orð | 1 mynd

Þetta gerðist...

17. apríl 1298 Árni Þorláksson biskup lést, 61 árs. Hann var Skálholtsbiskup frá 1269 og átti í deilum við leikmenn (staðamál). Árni setti fram kristnirétt sem við hann er kenndur. 17. Meira

Íþróttir

17. apríl 2009 | Íþróttir | 535 orð | 1 mynd

„Það skiptir öllu máli að toppa á réttum tíma“

HEIMAMAÐURINN Andri Steindórsson varð Íslandsmeistari í sprettgöngu á fyrsta degi Skíðamóts Íslands á Akureyri í gær, eftir mjög harða keppni við Sævar Birgisson frá Ísafirði. Í kvennaflokki sigraði gullstúlkan Elsa Guðrún Jónsdóttir úr Ólafsfirði. Meira
17. apríl 2009 | Íþróttir | 192 orð | 1 mynd

Elvar hættur hjá FH-ingum

Eftir Guðmund Hilmarsson gummih@mbl.is ELVAR Erlingsson er hættur að þjálfa karlalið FH í handknattleik en hann hefur stýrt Hafnarfjarðarliðinu undanfarin tvö ár. Liðið vann 1. Meira
17. apríl 2009 | Íþróttir | 315 orð | 2 myndir

Ég er stoltur og þakklátur

ÞÓRIR Hergeirsson var í gær ráðinn sem þjálfari norska kvennalandsliðsins í handknattleik, en hann hefur verið aðstoðarþjálfari Marit Breivik frá árinu 2001. Þar með eru tveir íslenskir þjálfarar við störf sem landsliðsþjálfarar erlendis. Meira
17. apríl 2009 | Íþróttir | 420 orð | 3 myndir

Fólk sport@mbl.is

Arnar Grétarsson , fyrirliði knattspyrnuliðs Breiðabliks , hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari liðsins fyrir komandi keppnistímabil. Hann mun jafnframt leika áfram með liðinu. Meira
17. apríl 2009 | Íþróttir | 94 orð | 1 mynd

,,Gríðarlegt kæruleysi og værukærð“

,,VIÐ hreinlega skitum á okkur í seinni hálfleik. Meira
17. apríl 2009 | Íþróttir | 527 orð | 1 mynd

Haukarnir skotnir niður á jörðina

FRÖMURUM tókst það sem engu liði hefur tekist að gera undanfarna mánuði, það er að leggja Íslandsmeistara Hauka að velli. Meira
17. apríl 2009 | Íþróttir | 254 orð

,,Hreint og klárt vanmat hjá okkur“

,,ÞETTA var bara hreint og klárt vanmat hjá okkur. Menn ætluðu bara að byrja að hvíla sig fyrir leik tvö þegar um 20 mínútur voru eftir. Meira
17. apríl 2009 | Íþróttir | 190 orð | 1 mynd

Kevin Garnett gæti misst af úrslitakeppni NBA

KEVIN Garnett er einn af lykilmönnum í meistaraliði Boston Celtics í NBA-deildinni en hann hefur misst af rúmlega 20 leikjum á lokaspretti deildarinnar vegna hnémeiðsla. Meira
17. apríl 2009 | Íþróttir | 443 orð

KNATTSPYRNA Deildabikar kv., Lengjubikar A-DEILD: KR – Breiðablik...

KNATTSPYRNA Deildabikar kv., Lengjubikar A-DEILD: KR – Breiðablik 0:9 Berglind Björg Þorvaldsdóttir 9., 32., 56., Sara Björk Gunnarsdóttir 13., 48., 67., Hlín Gunnlaugsdóttir 54., Fanndís Friðriksdóttir 57., Sandra Sif Magnúsdóttir 88. Meira
17. apríl 2009 | Íþróttir | 184 orð

KÖRFUKNATTLEIKUR NBA-deildin Úrslit í lokaumferðinni: Phoenix &ndash...

KÖRFUKNATTLEIKUR NBA-deildin Úrslit í lokaumferðinni: Phoenix – Golden State 117:113 Portland – Denver 104:76 LA Clippers – Oklahoma City 85:126 Orlando – Charlotte 98:73 San Antonio – New Orleans 105:98 *Eftir... Meira
17. apríl 2009 | Íþróttir | 229 orð | 1 mynd

Langar svo hrikalega til að vinna

„VIÐ getum þetta, það sýndi sig að þessu sinni. Síðasti leikur okkar við HK fyrir 10 dögum var hrikalega lélegur af okkar hálfu. Meira
17. apríl 2009 | Íþróttir | 176 orð | 1 mynd

Spurs náði þriðja sætinu vestra

NBA-deildakeppninni í körfuknattleik lauk í fyrrinótt með fjórtán leikjum og þar varð endanlega ljóst hvaða lið myndu mætast í 1. umferð úrslitakeppninnar. Meira
17. apríl 2009 | Íþróttir | 237 orð | 1 mynd

Stjörnumenn vanmeta ekki ÍR-inga

„VIÐ vanmetum að sjálfsögðu ekki ÍR-inga. Meira
17. apríl 2009 | Íþróttir | 176 orð | 1 mynd

Sturla hvíldur og útlit fyrir aðgerð á ökklanum

„ÉG ætla að gefa ökklanum eina til tvær vikur til viðbótar. Ef hann batnar ekki við meðferð á þeim tíma verður sennilega ekki komist hjá aðgerð,“ segir Sturla Ásgeirsson, handknattleiksmaður hjá þýska 2. Meira
17. apríl 2009 | Íþróttir | 338 orð | 2 myndir

Valsmenn voru sannarlega klárir í slaginn

BIKARMEISTARAR Vals voru svo sannarlega klárir í slaginn þegar úrslitakeppnin hófst í gær. Þeir voru á tánum frá fyrstu mínútu á meðan leikmönnum HK brast þor og kjarkur þar sem reynslumenn brugðust í sókninni. Meira
17. apríl 2009 | Íþróttir | 307 orð

Vörn okkar var frábær og Óli fór á kostum

Eftir Ívar Benediktsson iben@mbl.is „VÖRNIN var frábær hjá okkur og Óli [Ólafur Haukur Gíslason] fór á kostum í markinu. Meira

Bílablað

17. apríl 2009 | Bílablað | 98 orð | 1 mynd

Bill Gates í vélarhönnun?

Einn af ríkustu mönnum veraldar sem og bílaáhugamaður, Bill Gates stofnandi Microsoft, hefur sótt um einkaleyfi í Bandaríkjunum á frumlegri vélarhönnun eða rafsegultækni sem nýtir hreyfingar á vélarstimpli til að breyta vélrænu afli í rafrænt, fram og... Meira
17. apríl 2009 | Bílablað | 314 orð | 1 mynd

Bílaiðnaðurinn búi sig undir afhroð

Bílaiðnaðurinn í Evrópu hefur átt undir högg að sækja vegna heimskreppunnar. Það er þó ekki mikið miðað við hvað hann á í vændum, ef marka má nýja skýrslu ACEA, samtaka evrópskra bílsmiða. Meira
17. apríl 2009 | Bílablað | 552 orð | 2 myndir

Cadillac: Forn frægð og fordómar

Mbl.is/Bílar: Spurt og svarað nr. 134 Eftir Leó M. Jónsson leoemm@simnet.is Olíuleki í Pajero 3.2 DID Spurt: Er að vandræðast með kælikerfið í Pajero árg. 2001 með 3.2 DID-vélinni (með forðagrein). Smurolía fer út í kælivökvann. Meira
17. apríl 2009 | Bílablað | 456 orð | 1 mynd

Etanól á síðustu dropunum?

Eftir Ingvar Örn Ingvarsson ingvarorn@mbl. Meira
17. apríl 2009 | Bílablað | 276 orð | 1 mynd

Kappakstur í fyrirrúmi í Kína

Kappakstur verður í fyrirrúmi í þriðja móti formúlu-1 sem fram fer í Sjanghæ í Kína um helgina. Lokið er þrætumáli um loftdreifi keppnisbíla þriggja liða, Brawn, Toyota og Williams. Meira
17. apríl 2009 | Bílablað | 1195 orð | 4 myndir

Mjúk lending

Porsche hefur verið einn einbeittasti sportbílaframleiðandi heims allar götur síðan fyrsti 356-bíllinn leit dagsins ljós árið 1948. Meira
17. apríl 2009 | Bílablað | 103 orð | 1 mynd

Peugeot ævintýrahylki

Peugeot hefur lengið höfðað til jaðarhópa með furðulegum hugmyndum og nú virðist sem fyrirtækið hafi farið skrefi lengra með eins manns hylki fyrir ævintýrafólk. Þetta er torfærutæki með svipaða eiginleika og fjórhjól en yfirbyggt. Meira

Veldu dagsetningu

Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Morgunblaðið - fyrsta forsíðan

Morgunblaðið hjá Landsbókasafni

Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.