Greinar mánudaginn 11. september 2023

Fréttir

11. september 2023 | Innlendar fréttir | 521 orð | 1 mynd

Aftakaflóð verða tíðari á Íslandi

Klara Ósk Kristinsdóttir klaraosk@mbl.is Tíðari aftakaflóð á Íslandi gætu orðið raunin samhliða loftslagsbreytingum. Huga þarf að skipulagi íbúðakjarna og byggðarlaga samhliða framtíðarsviðsmyndum af stöðu sjávar. Meira
11. september 2023 | Innlendar fréttir | 274 orð | 1 mynd

Aldrei fleirum vísað úr landi eftir gæsluvarðhald

Einstaklingum sem er vísað úr landi strax að loknu gæsluvarðhaldi hefur fjölgað mikið á undanförnum árum. Stendur fjöldinn í 44 föngum það sem af er ári, samanborið við 36 allt fyrra ár, samkvæmt upplýsingum frá Fangelsismálastofnun Meira
11. september 2023 | Innlendar fréttir | 167 orð

Allir gististaðir undir er ráðstefnan fer fram

Von er á rúmlega hundrað vísindamönnum og fólki úr nýsköpunargeiranum á ráðstefnu Evrópsku kítinsamtakanna, EUCHIS, sem hefst á Siglufirði í dag. EUCHIS eru leiðandi samtök á heimsvísu í kítiniðnaðinum og standa fyrir slíkri ráðstefnu annað hvert ár Meira
11. september 2023 | Innlendar fréttir | 409 orð | 1 mynd

Áhugi á nýju golfhóteli á Akureyri

Golfklúbbur Akureyrar (GA) og Akureyrarbær hafa skrifað undir samning um uppbyggingu á nýrri inniaðstöðu fyrir GA í nýju húsi vestan við núverandi klúbbhús á Jaðarsvelli. Bjarni Þórhallsson, formaður Golfklúbbs Akureyrar, segir að til standi að byggja æfingahúsnæði eins og gert hafi t.d Meira
11. september 2023 | Innlendar fréttir | 299 orð | 1 mynd

„Getum ekki viðhaldið sams konar nálgun“

Ísland gæti orðið leiðandi á sviði tæknivæddrar heilbrigðisþjónustu á komandi árum ef rétt er staðið að málum, að mati Davíðs O. Arnar, yfirlæknis hjartadeildar Landspítala og prófessors við Háskóla Íslands Meira
11. september 2023 | Innlendar fréttir | 183 orð | 1 mynd

Fjórir koma heim með viðurkenningu

Fjórir íslenskir keppendur hlutu viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur á lokaathöfn Euroskills, Evrópumóts iðn-, verk- og tæknigreina, sem lauk um helgina. Hlaut Irena Fönn Clemmensen, frá Verkmenntaskólanum á Akureyri, jafnframt sérstök… Meira
11. september 2023 | Innlendar fréttir | 145 orð | 1 mynd

Flutningaskip tók niðri við Akurey

Portúgalska flutningaskipið Vera D tók niðri við Akurey um þrjúleytið í gær þegar skipið var á leið frá Reykjavík. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar var þegar gert viðvart og lék grunur á að mengun kæmi frá skipinu Meira
11. september 2023 | Fréttaskýringar | 753 orð | 4 myndir

Gegni mikilvægu aðhaldshlutverki

Baksvið Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Bæði Viðskiptaráð Íslands (VÍ) og Félag atvinnurekenda (FA) lýsa áhyggjum sínum af því að ráðgjafarnefnd um opinberar eftirlitsreglur hefur ekki verið starfandi frá því í maí 2020. Nefndin, sem heyrir undir Lilju D. Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, starfar samkvæmt lögum um opinberar eftirlitsreglur sem tóku gildi árið 1999. Meira
11. september 2023 | Innlendar fréttir | 400 orð | 2 myndir

Íslenska amasónan í „The Wheel of Time“

„Ég leik Bain í sjónvarpsseríunni „The Wheel of Time“, sem byrjað er að sýna á Amazon og minn karakter kemur fram í seinni hluta annarrar seríu,“ segir Ragnheiður Ragnarsdóttir, einnig þekkt sem Ragga Ragnars, leikkona og… Meira
11. september 2023 | Innlendar fréttir | 94 orð | 1 mynd

Íslenska fánanum flaggað og féð dregið í dilka í Eyjafirði

Íslenski fáninn var dreginn að hún í Gljúf­urár­rétt í Eyja­f­irði áður en fé var dregið í dilka í gærmorgun. Fjölmennt var í réttunum en mannfólkið var þó ekki nærri eins margt og féð sem taldi um fjögur þúsund Meira
11. september 2023 | Innlendar fréttir | 342 orð | 1 mynd

Jón Baldursson

Jón Baldursson, heimsmeistari í bridge og margfaldur Íslandsmeistari, lést aðfaranótt laugardags, 68 ára að aldri. Jón varð sextán sinnum Íslandsmeistari í sveitakeppni í bridge og Íslandsmeistari í tvímenningskeppni sex sinnum Meira
11. september 2023 | Innlendar fréttir | 319 orð | 1 mynd

Kulnun aukist töluvert meðal lögreglunnar

„Kveikjan að þessari rannsókn er hugmynd sem við fengum 2018 og gekk út á að framkvæma langtímarannsókn á líðan viðbragðsaðila hérna á Íslandi,“ segir Sigríður Björk Þormar, doktor í sálfræði við Háskólann í Reykjavík, sem kynnti niðurstöður rannsóknarinnar í fyrirlestri í skólanum á föstudaginn. Meira
11. september 2023 | Innlendar fréttir | 73 orð | 1 mynd

Kynna Pólland á millistríðsárunum

Pólskir dagar hefjast í Veröld – húsi Vigdísar í dag, mánudaginn 11. september. Dagskráin er skipulögð af Tungumálamiðstöð Háskóla Íslands í samstarfi við Háskólann í Varsjá og sendiráð Póllands í Reykjavík og stendur hún til 14 Meira
11. september 2023 | Innlendar fréttir | 463 orð | 2 myndir

Langt frá friðsælum heimi

Persónulegt ofbeldi og ofbeldi sem stofnanir beita þjónustuþega er meðal þess sem rætt verður um á ráðstefnu sem ber yfirskriftina Ofbeldi á óvissutímum og hefst í dag. Um er að ræða evrópska ráðstefnu um heimilisofbeldi sem haldin er á hótelinu… Meira
11. september 2023 | Erlendar fréttir | 816 orð | 2 myndir

Martraðarástand í Marrakesh

Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is Á þriðja þúsund manns eru látnir eftir 6,8 stiga jarðskjálfta í Norður-Afríkuríkinu Marokkó á föstudagskvöldið þar sem hin ævaforna borg Marrakesh varð hve verst úti en skjálftinn á föstudaginn var sá öflugasti sem þar hefur mælst í heila öld. Meira
11. september 2023 | Innlendar fréttir | 994 orð | 2 myndir

Meiri fagmennska verði í opnara félagi

„Íþróttafélög í hverjum bæ, borg eða hverfi hafa sífellt veigameira hlutverk,“ segir Þórhildur Garðarsdóttir formaður KR. „Barna- og unglingastarf skiptir miklu máli og það er mikilvægt að krakkarnir hér í Vesturbænum finni að hingað í Frostaskjólið séu þau alltaf velkomin Meira
11. september 2023 | Erlendar fréttir | 234 orð | 1 mynd

Skautuðu fram hjá stríðsátökum

Narendra Modi forsætisráðherra Indands vék að stríðinu í Úrkaínu og loftslagsbreytingum við lok leiðtogafundar G20-ríkjanna sem haldinn var á Indlandi. Forseti Rússlands Vladimír Pútín var víðs fjarri vegna innrásar Rússa í Úkraínu sem nú hefur staðið yfir í um 18 mánuði Meira
11. september 2023 | Innlendar fréttir | 108 orð | 1 mynd

Spreyttu sig á sparkhjólunum

Gleðin var við völd á Krónuhjólamóti Tinds og Hjólaskólans í Öskjuhlíðinni í gær. Um er að ræða hjólamót sem haldið var fyrir börn á aldrinum tveggja til tólf ára. Fjöldinn allur af ungum og efnilegum hjólreiðaköppum mætti til leiks en keppnin fór fram í sex aldursflokkum Meira
11. september 2023 | Innlendar fréttir | 396 orð | 1 mynd

Stýrivextirnir eru farnir að bíta

Hörður Vilberg hordur@mbl.is Verkefnastaða verkfræðistofa er misjöfn eftir því við hvað þær eru að fást en Sæmundur Sæmundsson framkvæmdastjóri Eflu kannast við það að samdráttur blasi nú við minni aðilum á markaðnum. Í umfjöllun Morgunblaðsins hefur komið fram að mikill viðsnúningur hafi átt sér stað á tólf mánuðum í hönnun á nýju húsnæði. Meira
11. september 2023 | Innlendar fréttir | 190 orð | 1 mynd

Tré ársins stóð af sér hremmingarnar

Sitkagreni sem stendur í hlíðum Seyðisfjarðar var formlega útnefnt tré ársins við hátíðlega athöfn í gær. Skógræktarfélag Íslands hefur útnefnt tré ársins í um 33 ár, segir Brynjólfur Jónsson, skógfræðingur hjá Skógræktarfélagi Íslands Meira
11. september 2023 | Fréttaskýringar | 751 orð | 3 myndir

Veruleg tækifæri fólgin í tæknivæðingu

Það eru mörg og verulega áhugaverð tækifæri fólgin í því að tæknivæða íslenska heilbrigðisþjónustu meira en gert hefur verið. Viðráðanlegur fólksfjöldi, tiltölulega öflugt heilbrigðiskerfi sem heldur vel utan um skráningar og fyrirtæki á borð við… Meira
11. september 2023 | Innlendar fréttir | 822 orð | 2 myndir

Vilja fleiri bændur í kjúklingaframleiðslu

Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Aukin eftirspurn eftir afurðum á sístækkandi markaði ræður því að stjórnendur Reykjagarðs eru áfram um að fá fleiri bændur í samstarf um kjúklingarækt. Framleiðsla á íslenskum kjúklingaafurðum var á síðustu tólf mánuðum um 9.700 tonn og jókst um nærri 5% milli ára. Þar við bætist að á síðustu misserum var með tollaafsláttum mikið flutt inn af kjúklingakjöti frá Úkraínu. „Reykjagarður flytur ekki inn kjúkling og reynslan af innflutningnum sýndist mér sú að neytendur vildu frekar innlenda framleiðslu,“ segir Guðmundur Svavarsson framkvæmdastjóri Reykjagarðs við Morgunblaðið. Meira
11. september 2023 | Innlendar fréttir | 162 orð | 1 mynd

Örvænting og ótti í Marokkó

Fannar Jónasson bæjarstjóri segir mikla örvæntingu og hræðslu hafa gripið um sig þar sem hann var staddur með íslenskum hópi á aðaltorginu í gamla miðbænum í Marrakesh í Marokkó þegar 6,8 stiga jarðskjálfti olli stórtjóni og varð á þriðja þúsund manns að bana á föstudagskvöld Meira

Ritstjórnargreinar

11. september 2023 | Leiðarar | 821 orð

Breyttur tónn

Nýleg orð Selenskís og yfirlýsing leiðtoga G20 eru umhugsunarverð Meira
11. september 2023 | Staksteinar | 206 orð | 2 myndir

Stjórnlaus útgjöld hjá hinu opinbera

Með nokkrum ólíkindum er að lesa svar félags- og vinnumarkaðsráðherra við fyrirspurn Bergþórs Ólasonar alþingismanns um kostnað Vinnumálastofnunar vegna umsækjenda um alþjóðlega vernd. Svarið nær til eins árs, frá júlí í fyrra til júní í ár, og snýr að ýmsum útgjaldaliðum. Meira

Menning

11. september 2023 | Fjölmiðlar | 181 orð | 1 mynd

Eyðileggingarmáttur Sarpsins

Það eru tvær gerðir sjónvarpsáhorfenda: Þeir sem horfa þolinmóðir á línulega dagskrá og hinir sem leggjast í sukk á Sarpinum og spæna í sig heilu þáttaraðirnar á mettíma. Það getur verið erfitt fyrir línulegan áhorfanda að eiga samskipti við… Meira
11. september 2023 | Menningarlíf | 883 orð | 1 mynd

Fléttar tengslavef kynslóðanna

„Síðasta einkasýning mín fjallaði um minni. Niðurstaða listrannsóknar sem tengdist sýningunni var meðal annars sú að við munum liðna atburði best í samskiptum við fólk, þar með talið fólkið sem var með okkur þegar ákveðnar minningar áttu sér stað Meira
11. september 2023 | Menningarlíf | 637 orð | 2 myndir

Hreina loftið, vatnið og kyrrðin

Liljana Milenkoska frá Makedóníu Erfið en rétt ákvörðun Á meðan þau veltu fyrir sér hvernig best væri að þróa framhaldið fékk Siggi… Meira
11. september 2023 | Menningarlíf | 107 orð | 1 mynd

Sýrlensk byggingarhefð í hættu

Sýrlensk byggingarhefð sem nær þúsundir ára aftur, er talin í mikilli hættu. Um er að ræða svokölluð „býflugnabúshús“; lítil hús með hvelfdu þaki sem byggð eru úr heyi og hleðslusteinum úr óbrenndum leir Meira

Umræðan

11. september 2023 | Aðsent efni | 641 orð | 3 myndir

Austfirsk jarðgöng – hagkvæm forgangsröðun

Göng um Suðurfirði í stað uppbyggingar á Suðurfjarðavegi og hringtengingar frá Neskaupstað til Seyðisfjarðar. Meira
11. september 2023 | Pistlar | 415 orð | 1 mynd

Bjargar Bjarni borgarlínunni?

Ég skrifaði þrjár greinar hér í blaðið um borgarlínuævintýrið í sumar. Þar setti ég í samhengi að ekki væri skynsamlegt að setja 250 milljarða af skattfé í úrelta lausn, spurði hvort borgarlínan mætti kosta hvað sem er og minnti svo á hver borgar þetta allt á endanum Meira
11. september 2023 | Aðsent efni | 683 orð | 1 mynd

Kærunefnd útlendingamála

Íslandi hefur verið breytt í alþjóðlegt, frítt sjúkrahótel; nema hvað aldraðir Íslendingar fá ekki þjónustu þar. Meira
11. september 2023 | Aðsent efni | 462 orð | 3 myndir

Náttúruvernd er í eðli sínu þverpólitísk

Formenn Landverndar, Náttúruverndarsamtaka Íslands og Ungra umhverfissinna skrifa. Meira
11. september 2023 | Aðsent efni | 874 orð | 1 mynd

Parísarhjól sem snýst ekki

Við vitum vel hvert vandamálið er í rekstri borgarinnar. Vinstri meirihlutinn sem hefur stjórnað borginni nú í rúm 13 ár – með ýmsum viðbótum og tjasli – hefur hvorki áhuga á fjármálum né rekstri. Meira
11. september 2023 | Aðsent efni | 745 orð | 1 mynd

Umferðarvandinn og umferðarleysisvandinn

Í stað þess að aðlaga almenningssamgöngurnar fólkinu átti að laga fólkið að almenningssamgöngunum. Meira

Minningargreinar

11. september 2023 | Minningargreinar | 2582 orð | 1 mynd

Egill Sveinsson

Egill Sveinsson bankamaður og myndskeri fæddist í Reykjavík 7. október 1930. Hann lést 28. ágúst 2023 á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi. Foreldrar hans voru (Guðbrandur) Sveinn Þorkelsson kaupmaður og söngvari, f Meira  Kaupa minningabók
11. september 2023 | Minningargreinar | 1372 orð | 1 mynd

Emilía Ósk Guðjónsdóttir

Emilía Ósk Guðjónsdóttir fæddist 3. mars 1935. Hún lést 23. ágúst 2023. Útför hennar fór fram 8. september 2023. Meira  Kaupa minningabók
11. september 2023 | Minningargreinar | 494 orð | 1 mynd

Guðrún Siglaugsdóttir

Guðrún Siglaugsdóttir (Gógó) fæddist 1. ágúst 1947. Útför hennar fór fram 8. september 2023. Meira  Kaupa minningabók
11. september 2023 | Minningargreinar | 415 orð | 1 mynd

Haukur Hallsson

Haukur Hallsson fæddist 10. ágúst 1944 í Reykjavík. Hann lést 29. ágúst 2023 á heimili sínu. Útför fer fram frá Lindakirkju í dag, 11. september 2023, klukkan 13. Meira  Kaupa minningabók
11. september 2023 | Minningargreinar | 3876 orð | 1 mynd

Helgi Rúnar Bragason

Helgi Rúnar Bragason var fæddur 6. júní 1976. Helgi Rúnar lést á sjúkrahúsi Akureyrar eftir rúmlega tveggja ára baráttu við illvígt krabbamein þann 27. ágúst 2023. Foreldrar Helga Rúnars eru Bragi Ingvason, f Meira  Kaupa minningabók
11. september 2023 | Minningargreinar | 917 orð | 1 mynd

Jón Aðalsteinsson

Jón Aðalsteinsson fæddist 14. ágúst 1930. Hann lést 14. ágúst 2023. Útför Jóns fór fram 9. september 2023. Meira  Kaupa minningabók
11. september 2023 | Minningargreinar | 1479 orð | 1 mynd

Ólafur Árni Bjarnason

Ólafur Árni Bjarnason fæddist í Reykjavík 18. júní 1962. Hann lést 3. september 2023 á líknardeild Landspítalans i Kópavogi. Ólafur Árni var sonur hjónanna Bjarna Ólafssonar framkvæmdastjóra og ráðgjafa, f Meira  Kaupa minningabók
11. september 2023 | Minningargreinar | 1023 orð | 1 mynd

Óskar Axelsson

Óskar Axelsson var fæddur 23. desember 1941 á Hjalteyri við Eyjafjörð. Hann lést 27. ágúst 2023 á Húsavík. Foreldrar hans voru Karen Guðjónsdóttir, f. 5. janúar 1901, d. 23. október 1995, og Axel Sigurbjörnsson, f Meira  Kaupa minningabók

Viðskipti

11. september 2023 | Viðskiptafréttir | 310 orð | 1 mynd

Breytt vinnubrögð og breyttar þarfir

Morgunblaðið bað um viðbrögð menningar- og viðskiptaráðuneytisins við áhyggjum VÍ og FA. Í svari ráðuneytisins segir að margt hafi breyst síðan lög um opinberar eftirlitsreglur tóku gildi árið 1999 og hafi ráðuneytið lögin núna til skoðunar Meira

Fastir þættir

11. september 2023 | Dagbók | 92 orð | 1 mynd

Ákvað að gefa sjálfri sér séns

Tónlistarkonan Una Torfadóttir mætti í hljóðver K100 á dögunum til að ræða við þau Kristínu Sif og Þór Bæring um tónlistina, lagasmíðarnar og plönin fram undan og viðurkenndi hún meðal annars að hún væri enn hissa á því að fólk keypti miða á tónleika með henni Meira
11. september 2023 | Í dag | 59 orð

Búsifjar (ekki „búsefjar“) merkir nábýli , samskipti nágranna; líka tjón .…

Búsifjar (ekki „búsefjar“) merkir nábýli, samskipti nágranna; líka tjón Meira
11. september 2023 | Í dag | 186 orð

Hnútur Gordons. S-NS

Norður ♠ G652 ♥ 94 ♦ KD862 ♣ 82 Vestur ♠ K3 ♥ K10763 ♦ Á97 ♣ 1076 Austur ♠ 1074 ♥ Á52 ♦ 1053 ♣ D954 Suður ♠ ÁD98 ♥ DG8 ♦ G4 ♣ ÁKG3 Suður spilar 4♠ Meira
11. september 2023 | Í dag | 51 orð | 1 mynd

Kolbrún Gígja Einarsdóttir

30 ára Kolla er Akureyringur og er leikskólakennari á Klöppum. Áhugamálin eru útivera, hreyfing og samvera með fjölskyldu og vinum. Fjölskylda Börn Kollu eru Róbert Aron, f. 2017, og Elín Hulda, f. 2020 Meira
11. september 2023 | Í dag | 386 orð

Kvensamur, kúl og hipp

Þorleifur Konráðsson segir á Boðnarmiði að enn berist fréttir af glannaskap ferðamanna í Reynisfjöru: Enn fær gestsins auga fangað einstök fjara hér. Túristarnir tölta þangað til að drekkja sér. Hörður Björgvinsson skrifar: Ég er nýlega kominn heim eftir mánaðardvöl á heilsustofnun í Hveragerði Meira
11. september 2023 | Í dag | 153 orð | 1 mynd

Skák

1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. g3 d5 4. Bg2 Bb4+ 5. Rd2 0-0 6. Rgf3 Rbd7 7. 0-0 b6 8. a3 Be7 9. b4 Bb7 10. Dc2 c5 11. bxc5 bxc5 12. Hb1 Dc7 13. He1 dxc4 14. dxc5 Rxc5 15. Dxc4 Bd5 16. Dc2 Hac8 17. Bb2 Da5 18 Meira
11. september 2023 | Í dag | 30 orð | 1 mynd

Vinkonurnar Sara Björg Sigurðardóttir, Margrét Einarsdóttir, Stefanía…

Vinkonurnar Sara Björg Sigurðardóttir, Margrét Einarsdóttir, Stefanía Ingólfsdóttir og Veronika Ólafsdóttir söfnuðu dóti og héldu tombólu í Spönginni til að safna fé fyrir Rauða krossinn. Afraksturinn var 15 þúsund krónur. Meira
11. september 2023 | Í dag | 754 orð | 3 myndir

Þýðir Púskhín og syngur í kór

Áslaug Thorlacius er fædd 11. september 1963 á Blönduósi en ólst upp í Hlíðunum í Reykjavík. „Foreldrar mínir bjuggu á Kleifum við Blönduós þegar ég fæddist en fluttu suður skömmu síðar. Afi og amma bjuggu á Kleifum og ég var þar alltaf á… Meira

Íþróttir

11. september 2023 | Íþróttir | 297 orð | 2 myndir

Allt í járnum fyrir lokaleiki tímabilsins

Það ræðst í lokaumferð neðri hluta Bestu deildar kvenna í knattspyrnu hvaða lið fellur úr deildinni ásamt Selfossi. Hannah Jane Cade skoraði sigurmark Tindastóls gegn Selfyssingum í 20. umferð deildarinnar á Selfossi í gær í 2:1-sigri Sauðkrækinga með marki úr vítaspyrnu Meira
11. september 2023 | Íþróttir | 633 orð | 4 myndir

Brasilíski knattspyrnumaðurinn Antony hefur verið settur til hliðar hjá…

Brasilíski knattspyrnumaðurinn Antony hefur verið settur til hliðar hjá félagsliði sínu Manchester United um óákveðinn tíma eftir að fyrrverandi unnusta hans Gabriela Cavallin kærði hann til lögreglunnar í Sau Paulo í Brasilíu fyrir andlegt og líkamlegt ofbeldi Meira
11. september 2023 | Íþróttir | 527 orð | 1 mynd

Hareide boðar breytingar

Åge Hareide, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, ætlar sér að gera breytingar á byrjunarliði sínu, frá leiknum gegn Lúxemborg í Lúxemborg á föstudaginn, fyrir leikinn gegn Bosníu í J-riðli undankeppni EM 2024 sem fram fer á Laugardalsvelli í dag Meira
11. september 2023 | Íþróttir | 137 orð | 1 mynd

Heimsmeistarar í fyrsta sinn í sögunni

Dennis Schröder fór á kostum fyrir Þýskaland þegar liðið varð heimsmeistari í fyrsta sinn eftir sex stiga sigur gegn Serbíu, 83:77, í úrslitaleik HM karla í körfuknattleik á Filippseyjum í gær. Schröder skoraði 28 stig, tók tvö fráköst og gaf tvær… Meira
11. september 2023 | Íþróttir | 132 orð | 1 mynd

Íslandsmeistararnir fara vel af stað

Íslandsmeistarar ÍBV fara vel af stað í úrvalsdeild karla í handknattleik en liðið vann öruggan níu marka sigur gegn Stjörnunni í 1. umferð deildarinnar í Garðabænum á laugardaginn, 33:24. Stjarnan leiddi með marki í hálfleik, 14:13, en Eyjamenn sigu fram úr þegar fimmtán mínútur voru til leiksloka Meira
11. september 2023 | Íþróttir | 223 orð | 1 mynd

Stórsigur Valskvenna í fyrsta stórleiknum

Thea Imani Sturludóttir fór mikinn fyrir Val þegar liðið vann níu marka sigur gegn Fram í 1. umferð úrvalsdeildar kvenna í handknattleik á Hlíðarenda á laugardaginn, 29:20. Thea gerði sér lítið fyrir og skoraði sjö mörk en Valskonur voru miklu… Meira
11. september 2023 | Íþróttir | 37 orð | 1 mynd

Úrslitin ráðast í lokaumferðinni

Það ræðst í lokaumferð neðri hluta Bestu deildar kvenna í knattspyrnu hvaða lið fellur úr deildinni ásamt Selfossi en í gær vann Tindastóll 2:1-sigur gegn Selfossi á Selfossi og Keflavík vann 2:1-sigur gegn ÍBV í Vestmannaeyjum Meira
11. september 2023 | Íþróttir | 252 orð | 1 mynd

Valskonur skrefi nær riðlakeppninni

Íslandsmeistarar Vals eru komnir áfram í 2. umferð Meistaradeildar kvenna í knattspyrnu eftir sigur gegn Albaníumeisturum Vllazniu í Shkoder í Albaníu í úrslitum 1. umferðarinnar á laugardaginn. Leiknum lauk með naumum sigri Vals, 2:1, en Valskonur leiddu með einu marki gegn engu í hálfleik Meira

Veldu dagsetningu

Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Morgunblaðið - fyrsta forsíðan

Morgunblaðið hjá Landsbókasafni

Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.