Trompslag fórnað.
Norður | |
♠6 | |
♥Á43 | |
♦ÁKDG108 | |
♣1063 |
Vestur | Austur |
♠K10852 | ♠94 |
♥1072 | ♥KDG95 |
♦73 | ♦9542 |
♣K97 | ♣85 |
Suður | |
♠ÁDG73 | |
♥86 | |
♦6 | |
♣ÁDG42 |
Írska konan Rebecca O'Keeffe sat í sæti vesturs, í vörn gegn hálfslemmu í laufi. Austur hafði doblað fyrirstöðusögn norðurs í hjarta og O'Keeffe kom þar út. Suður var Skotinn Victor Silverstone. Hann tók á ♥Á, spilaði tígli tvisvar og henti hjarta. Spilaði síðan laufi á drottninguna.
Sagnhafi hefði helst viljað að svíningin misheppnaðist, því þá mætti síðar komast inn á ♣10 til að gæða sér á tíglunum. En nei, svíningin heppnaðist – eða það hélt Silverstone. O'Keeffe dúkkaði nefnilega án minnsta hiks. Silverstone spilaði næst ♣G að heiman og aftur gaf O'Keeffe slaginn! Hún fórnaði trompslagnum fyrir tvo á spaða síðar. Es. Það er nauðsynlegt að dúkka fyrsta trompið fumlaust, því ef sagnhafi hefur grun um kónginn í vestur spilar hann næst smáu laufi að tíunni.