Jóhanna Sigríður Jónína Helgadóttir
Snert hörpu mína, himinborna dís
svo hlusti englar Guðs í Paradís.
Við götu mína fann ég fjalarstúf,
þáog festi hann á streng og rauðan skúf.
Úr furutré, sem fann ég úti við sjó,
ég fugla skar og líka úr smiðjumó.
Í huganum til himins oft ég svíf
og hlýt að geta sungið í þá líf.
Þeir geta sumir synt á læk og tjörn,
og sumir verða alltaf lítil börn.
En sólin gyllir sund og bláan fjörð
og sameinar með töfrum loft og jörð.
Ég heyri í fjarska villtan vængjaþyt,
um varpann leikur draumsins perluglit.
Snert hörpu mína himinborna dís,
og hlustið, englar Guðs í Paradís.
(D. Stefánsson.) Þín
Erna Ösp.