Fjórar gæsabringur 100 g gróft salt 50 g blandaðar kryddjurtir, rósmarín, timjan 20 mulin einiber Svartur pipar, mulinn 100 ml púrtvín Aðferð: Stráið saltinu yfir gæsabringurnar og látið standa í klukkutíma. Skolið saltið af, hellið púrtvíni yfir ásamt pipar og kryddjurtunum. Látið standa í ísskáp í tvo daga. Púrtvínsberjasósa
Kryddlegnar villigæsabringur með púrtvínsberjasósu

Fjórar gæsabringur

100 g gróft salt

50 g blandaðar kryddjurtir, rósmarín, timjan

20 mulin einiber

Svartur pipar, mulinn

100 ml púrtvín



Aðferð: Stráið saltinu yfir gæsabringurnar og látið standa í klukkutíma. Skolið saltið af, hellið púrtvíni yfir ásamt pipar og kryddjurtunum. Látið standa í ísskáp í tvo daga.



Púrtvínsberjasósa

Aðferð: Blandið saman 100 g rifsberjasultu, 50 ml púrtvíni og saxaðri steinselju og rósmarín. Kryddið með svörtum pipar eftir smekk.