Það hafa ekki allir efni á því að kaupa sér forláta sous vide-græjur eins og kveðið er á um. En hvað er þá til ráða? Hvernig geta þeir sem ákveða að fjárfesta ekki í sérstökum græjum hægeldað matinn eftir kúnstarinnar reglum?
Lausnin er merkilega einföld en það sem sem þú þarft er:
- Endurlokanlegur poki (sagt er að þeir bestu séu í IKEA)
- Grillhitamælir
- Vaskur
- Heitt vatn
Aðferð:
- Setur matvælin í endurlokanlegan poka og í eldhúsvaskinn.
- Setur tappann í vaskinn og skrúfar frá vatninu.
- Því næst setur þú grillhitamælinn í vatnið og stillir hitann og rennslið þannig að það renni gegnum yfirfallið á vaskinum og hitinn haldist stöðugur.