Ein geggjaðasta grillveisla sem sést hefur lengi var haldin í gær í Grjótaþorpinu í gær og þar var gleðin við völd eins og sjá má. Ein eftirlætisfjölmiðlakona þjóðarinnar, Guðrún Sóley Gestsdóttir, var á grillinu þar sem hún galdraði fram þrjár tegundir af bulsum svo athygli vakti.
Sjálf var Guðrún hæstánægð með veisluna þegar Matarvefurinn náði tali af henni en vildi ítreka að það var Tómas Oddur Eiríksson sem var upphafsmaður að veislunni sem Guðrún var sannfærð um að yrði árlegur viðburður hér eftir.
Tómas stýrði acro-jóga í veislunni auk þess sem boðið var upp á DJ, lifandi tónlistarflutning og andlitsmálun.