„Marengsinn þarf bara að þeyta nógu lengi!“

Svava Gunnarsdóttir.
Svava Gunnarsdóttir. Haraldur Jónasson/Hari

Svava Gunnarsdóttir er einn ástsælasti og vinsælasti matarbloggari landsins. Hún heldur úti síðunni Ljúfmeti og lekkerheit þar sem hún galdrar fram gómsætar kræsingar á afar lekkeran hátt eins og henni einni er lagið. Hún er jafnframt framúrskarandi bakari og við báðum hana um að skella í eina köku handa okkur og svara nokkrum bráðnauðsynlegum spurningum – sem hún samþykkti með bros á vör.

Hvað finnst þér skemmtilegast að baka?

Mér þykir alltaf gaman að prófa nýjar uppskriftir. Nú eru börnin mín orðin svo stór og upptekin í sínu að ég nýti helst tækifærið þegar allir eru heima og hef kvöldkaffi með nýbakaðri köku. Ég get varla hugsað mér notalegri endi á deginum.

Uppáhaldskakan þín?

Nýbökuð skúffukaka með köldu mjólkurglasi kemur fyrst upp í hugann. Yfir aðventuna vil ég síðan eiga sörur í frystinum til að fá mér með kaffibollanum.

Stærsta kökuklúðrið?

Ef ég á að vera hreinskilin þá man ég ekki eftir neinu stóru kökuklúðri. Það er svo einfalt að baka, ef uppskriftinni er fylgt þá er útkoman oftast góð. Síðan má kannski deila um hvort útlitið sé alltaf upp á tíu en svoleiðis klúðri má alltaf bjarga með rjóma og berjum.

Hvað bakarðu þegar von er á gestum?

Það fer eftir tilefni og árstíma. Núna þegar aðventan nálgast býð ég helst upp á brownies sem ég ber fram með þeyttum rjóma með muldum bismark-brjóstsykri út í.

Hvaða ráð myndir þú gefa bökunarbyrjendum?

Að fylgja uppskriftunum og vera óhrædd. Mér finnst aðallega tvennt vefjast fyrir þeim sem eru óöruggir þegar kemur að bakstri: gerdeig og marens. Ég læt gerdeig hefast í ofninum við 40° og það skilar alltaf vel hefuðu og góðu deigi. Marengsinn þarf bara að þeyta nógu lengi!

Geta allir orðið bloggarar?

Það geta allir bloggað og ég hvet alla sem hafa áhuga til að láta verða af því. Það er svo gaman að eiga minningar skrásettar á svona aðgengilegan hátt og í mínu tilfelli þykir mér gott að geta haldið utan um og nálgast uppskriftirnar mínar á svona einfaldan máta.
Svava Gunnarsdóttir skellti í jarðaberjaböku fyrir lesendur matarvefsins.
Svava Gunnarsdóttir skellti í jarðaberjaböku fyrir lesendur matarvefsins. Haraldur Jónasson/Hari
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert