Metfjöldi bókaður í jólahlaðborð

Nú fer hver að verða síðastur að bóka sig í jólahlaðborð en þau hefjast með pompi og prakt á flestum stöðum um helgina. Misjafnt er hvernig bókað er en telja má víst að Húsvíkingar slái met í ár en yfir þúsund manns hafa boðað komu sína á jólahlaðborð hjá Fosshótelinu þar í bæ. Þetta verður að teljast til tíðinda og má fastlega reikna með að þetta hljóti að vera einhvers konar met sem þarna er slegið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert