Blómkálsbaka sem þú verður að smakka

Einu sinni smakkað og þú getur ekki hætt.
Einu sinni smakkað og þú getur ekki hætt. mbl.is/Winnie Methmann

Blómkál og sveppir eru frábært kombó og smakkast alveg dásamlega vel, sérstaklega ristað í ofni eins og við sjáum hér. Stökkur hafrabotn í böku sem þú munt alveg örugglega gera aftur og aftur – svo góð er hún. Það er næstum óhætt að fullyrða að hér sé besta blómkálsbaka í heimi, þar til annað kemur í ljós.

Blómkálsbaka sem þú verður að smakka

  • 1 blómkálshaus
  • 250 g sveppir
  • 1 laukur
  • 1 msk ólífuolía
  • salt og pipar
  • 5 egg
  • 1 dl mjólk
  • handfylli ferskt timían
  • 25 g parmesan

Tertubotn:

  • 250 g haframjöl
  • 1 tsk salt
  • 1 egg
  • 1 eggjahvíta
  • ½ dl ólífuolía
  • ½ dl vatn
  • 1 tertuform

 

Aðferð:

  1. Hitið ofninn á 220°.
  2. Skerið blómkál og sveppi í sneiðar. Skerið einnig laukinn í þunnar sneiðar og dreifið öllu á bökunarplötu með bökunarpappír. Dreifið ólífuolíu yfir og saltið. Bakið í ofni í 25 mínútur, þar til grænmetið er orðið fallega gyllt.
  3. Tertubotn: Blandið hafragrjóni og hveiti saman í matvinnsluvél, þar til blandan verður mjög fín. Bætið við salti, eggi, eggjahvítu og olíu og blandið vel saman í deig. Bætið vatni smátt út í þar til deigið verður mjúkt og meðfærilegt. Rúllið því út á milli tveggja arka af bökunarpappír og setjið varlega yfir í tertuformið. Notið gaffal til að stinga í deigið og bakið við 220° í ofni í 10 mínútur.
  4. Pískið egg og mjólk saman, salt, pipar og 1 msk. af fínsöxuðu timían. Dreifið bökuðu grænmetinu og sveppunum á tertubotninn og hellið eggjablöndunni yfir. Dreifið parmesan yfir og inn í ofn í 15 mínútur, eða þar til eggjamassinn er bakaður.
  5. Skreytið með timían og berið fram.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert