Grillaður humar með karrý-lime-dressingu

Grillaður humar með stórkostlegri dressingu fyrir þá sem vilja gera …
Grillaður humar með stórkostlegri dressingu fyrir þá sem vilja gera vel við sig. mbl.is/Colourbox

Lúxusmáltíð í einum bita! Í dag ætlum við a leyfa okkur grillaðan humar með hreint út sagt magnaðri dressingu sem kætir bragðlaukana.

Grillaður humar með karrý-lime-dressingu (fyrir 4)

  • 1 stórt hvítlauksrif
  • 1 tsk. karrý
  • ½ dl ólífuolía
  • Safi úr 1-2 lime
  • Salt og pipar
  • 12-16 humarhalar
  • 1 fennel
  • 1 skallottlaukur
  • 1 lítil gúrka

Aðferð:

  1. Ristið marin hvítlauk og karrý í ólífuolíu. Látið kólna og blandið lime-safa saman við. Smakkið til með salti og pipar.
  2. Hreinsið humarinn og brjótið skelina.
  3. Pennslið kjötið í humrinum með ólífuolíu og grillið í 1-2 mínútur þar til humarinn verður hvítur og fastur í sér.
  4. Saxið fennel og lauk smátt og rífið gúrkuna í strimla.
  5. Veltið grænmetinu upp úr helmingnum af karrý-lime-dressingunni og smakkið til.
  6. Berið fram humar með salati á fjóra diska og hellið restinni af dressingunni yfir. Einnig gott að bera fram með hvítlauksbrauði.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert