John Lindsay hf. kaupir Kryddhúsið

John Lindsay hf. hefur keypt Kryddhúsið af hjónunum Ólöfu Einarsdóttur …
John Lindsay hf. hefur keypt Kryddhúsið af hjónunum Ólöfu Einarsdóttur og Omry Avraham. Samsett mynd

John Lindsay hf. hefur keypt Kryddhúsið. Lindsay sérhæfir sig í innflutningi, heildsölu og framleiðslu á mat- og dagvöru til heimila og mötuneyta. Kryddhúsið var stofnað árið 2015 af hjónunum Ólöfu Einarsdóttur og Omry Avraham, og framleiðir í dag yfir 90 tegundir af kryddum og kryddblöndum sem fást í matvöruverslunum um land allt.

Lindsay sérhæfir sig í innflutningi, heildsölu og framleiðslu á mat- …
Lindsay sérhæfir sig í innflutningi, heildsölu og framleiðslu á mat- og dagvöru til heimila og mötuneyta. Ljósmynd/Lindsay

Skapa ný tækifæri og opna nýja markaði

Stefán S. Guðjónsson, eigandi og framkvæmdastjóri Lindsay, segir að framleiðsla og vörulager muni færast í Klettagarða 23. „Við teljum að sameinað félag muni skapa ný tækifæri og opna nýja markaði fyrir þessar frábæru vörur. Við erum stöðugt að auka vöruframboð og þjónustu við viðskiptavini okkar og eru kaupin liður í því,“ segir Stefán.

Kryddhúsið verður sameinað matvælaframleiðandanum Agnari Ludvigssyni ehf., sem er dótturfélag Lindsay, og framleiðir Royal lyftiduft, Royal búðinga og Bezt á kryddin. Arta lögmenn sáu um ráðgjöf við kaupin og KPMG annaðist áreiðanleikakönnun fyrir hönd Lindsay.

„Við göngum á vit nýrra ævintýra eftir lærdómsrík ár í Kryddhúsinu. Eftir stendur frábært vörumerki sem á eftir að dafna enn frekar hjá nýjum rekstraraðilum enda einvala starfslið í hverri stöðu þar. Það verður gaman að fylgjast með á hliðarlínunni í framtíðinni,“ segja Ólöf og Omry.

Kryddhúsið var stofnað árið 2015 af hjónunum Ólöfu Einarsdóttur og …
Kryddhúsið var stofnað árið 2015 af hjónunum Ólöfu Einarsdóttur og Omry Avraham sem þau hlúð að með ástríðu og natni frá upphafi. Í dag framleiðir Kryddhúsið yfir 90 tegundir af kryddum og kryddblöndum. Ljósmynd/Kryddhúsið
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert