Langbesta Hollandaise-sósan

Hollandaise-sósan skiptir sköpun þegar boðið er upp á Egg Benedict.
Hollandaise-sósan skiptir sköpun þegar boðið er upp á Egg Benedict. Ljósmynd/Unsplash

Þegar framreiða á Egg Benedict er ómissandi að kunna að búa til bragðgóða og fallega Hollandaise-sósu. Galdurinn er að nostra við sósugerðina og leggja metnað í að hafa áferðina létta og flauelsmjúka. Hér er uppskrift að þessari dýrð sem á rætur sínar að rekja til Gunnar Karls, matreiðslumanns og Michelin-stjörnukokks, og ég hef gert þessa í mörg ár. Sósan er líka afar góð með fiskréttum en þessa dagana er þetta aðalsósan sem boðið er upp á þegar Egg Benedict er framreidd.

Hollandaise-sósa

Fyrir 3-4

  • 3 msk. vatn
  • 1 msk. hvít piparkorn eða hvítur pipar
  •  1 msk. hvítvínsedik, hvítvínsedikið frá Olifa er ótrúlega gott
  • 3 stk. eggjarauður, meðalstór egg
  • 200 g smjör
  • 1 tsk. sítrónusafi, úr ferskri sítrónu
  • Salt eftir smekk

Aðferð:

  1. Byrjið á því að setja vatn, piparkorn og hvítvínsedik í pott og sjóðið niður þar til um ein matskeið er eftir af vökva.
  2. Takið pottinn af hitanum og kælið aðeins.
  3. Pískið síðan saman eggjarauður og setjið pottinn yfir vatnsbað.
  4. Hitið við mjög vægan hita, má alls ekki fara yfir 60°C hita og pískið allt vel saman í pottinum í 2-3 mínútur.
  5. Bræðið smjörið og hellið saman við í mjórri bunu í smá skömmtum í einu.
  6. Smakkið sósuna til með salti, pipar og sítrónusafa, má nota ögn meira af sítrónusafa ef vill.
  7. Sigtið sósuna og berið fram eða hellið yfir hleypta eggið ef það er rétturinn sem bjóða á upp á.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert