Lúxus núðlurréttur á mettíma

Lúxus núðluréttur að hætti Möggu Ríkharðs galdraður fram á mettíma.
Lúxus núðluréttur að hætti Möggu Ríkharðs galdraður fram á mettíma. mbl.is/Árni Sæberg

Margrét Ríkharðsdóttir, alla jafna kölluð Magga, yfirkokkur og einn eigenda á veitingastaðnum Duck & Rose toppar sig enn og aftur með þessum snilldar lúxus núðlurétti hægt er að galdra fram á mettíma. Svo góður og fáránlega einfaldur.

Margrét Ríkarðsdóttir nýtur þess að borða þennan núðlurétt með prjónum, …
Margrét Ríkarðsdóttir nýtur þess að borða þennan núðlurétt með prjónum, finnst það skapa meiri stemningu með verið er að njóta matarins. mbl.is/Árni Sæberg

„Þetta er minn „go to“ réttur þegar ég nenni ekki að elda eða langar í eitthvað extra næs með lítilli fyrirhöfn. Það tekur enga stund að galdra þennan núðlurétt fram. Þetta er líka réttur sem ég hendi oft í ef ég var með steik kvöldið áður og þá nota ég afgangskjötið. Það má auðvitað nota hvaða grænmeti í réttinn og tilvalið að grípa það sem er til í kælinum,“ segir Magga og brosir.

Æðislegur núðluréttur sem sprengir allan skalann.
Æðislegur núðluréttur sem sprengir allan skalann. mbl.is/Árni Sæberg

Lúxus núðlur á mettíma

Fyrir 4

  • 400-500 g nauta mínútusteik (ef þú átt afgangs nautakjöt frá kvöldinu áður sem er eldað er líka fullkomið að nota það)
  • 4 pk. Thai choice núðlur með tom yum bragði, sniðugt að vera með kjúklingabragð fyrir börn svo sé ekki of sterkt
  • ½ flaska Thai choice teriyakisósa
  • 2 dl vatn
  • Ferskt kóríander ef vill
  • Hunangshnetur ef vill
  • 1 haus brokkolí
  •  1 stk. rauð paprika
  • 4 stk. gulrætur
  • 1 stk. ferskt chili, má sleppa
  • 8 geirar hvítlaukur eða 2 heilir hvítlaukar
  • 1 kubbur kjúklingakraftur

Aðferð:

  1. Byrjið á að setja vatn í pott fyrir núðlurnar og látið það sjóða á meðan þið skerið grænmetið.
  2. Takið hvítlaukinn og chili til hliðar en það fer síðar á pönnuna.
  3. Þegar grænmetið er klárt þá bætið þið því á funheita pönnu með smá olíu.
  4. Allra best er að nota wok pönnu en það er hægt að nota hvernig pönnu sem er.
  5. Meðan þið steikið grænmetið er upplagt að skera kjötið í munnstærðar bita.
  6. Bætið síðan kjötinu út á pönnuna og steikið.
  7. Þegar kjötið er búið að brúnast bætið þá saman við hvítlauk og chili og smá kjúklingakrafti.
  8. Loks bætið þið við teriyakisósunni og vatninu og látið suðuna koma upp og lækkið síðan hitann í 1-2 og leyfið að malla á pönnunni meðan þið sjóðið núðlurnar.
  9. Sjóðið núðlurnar aðeins lengur heldur en stendur á pakkningunni.
  10.  Hellið síðan öllu vatninu af  og setjið kryddið út í pottinn og hrærið vel.
  11. Setjið loks núðlurnar í skál, kjötið, grænmetið og sósuna svo yfir. Ef þið eigið góðar hnetur er tilvalið að saxa smá af þeim yfir og ásamt smá fersku kóríander en það er ekki nauðsyn.
  12. Berið fram með prjónum ef ykkur langar að vera með extra stemningu, það er ávallt gaman að borða núðlur með prjónum.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert