Skráðu þig inn til að horfa á þáttinn
Athugið að Dagmálsþættir eru aðeins fyrir áskrifendur Morgunblaðsins.
Dægurmál
6. ágúst 2021
Ingileif Friðriksdóttir er stofnandi Hinseginleikans, fræðsluvettvangs um fjölbreytileikann og hinsegin samfélagið, sem hefur vakið gríðarlega mikla athygli á undanförnum árum ásamt uppbyggilegum áhrifum. Hún stýrir miðlinum ásamt Maríu Rut Kristinsdóttur, eiginkonu sinni, og hafa þær staðið fyrir ýmsum fyrirlestrum, viðburðum, þáttum, hlaðvörpum og fleira. Saman eiga þær tvo stráka. Þær gáfu út bókina Vertu Þú árið 2020 og halda stöðugt áfram að miðla upplýsingum með hjálp fjölbreyttra radda úr Hinseginsamfélaginu. Ingileif er mikill lífskúnstner sem hefur gaman að fjölbreytileika lífsins og segir mikilvægt að vera meðvituð um að við þurfum stöðugt að halda áfram að vera með læti og berjast fyrir réttindum hinsegin samfélagsins. Ásamt Hinseginleikanum starfar Ingileif hjá framleiðslufyrirtækinu Ketchup Creative og er með BA gráðu í lögfræði. Í Dagmálum ræddi hún við Dóru Júlíu um mikilvægi fjölbreytileikans, frelsi fólks til að fá að vera það sjálft, að fara út fyrir „normið“, hamingjuna, fjölskyldulífið, tækifærin til að fræða, þróun Hinseginleikans, að vera við sjálf og búa til pláss fyrir aðra og alls konar uppbyggilegt og skemmtilegt.
Fáðu meira með vikupassa!
Vikupassinn veitir þér fullan aðgang að Dagmálum ásamt öllu öðru efni fyrir áskrifendur Morgunblaðsins í viku fyrir aðeins 2.629 kr.
Fréttir - Ritstjórnargreinar - Menning - Umræðan - Minningargreinar - Viðtöl - Viðskipti - Daglegt líf - Aðsendar greinar - og umfram allt: fagleg fréttamennska