Maður og hundur gengu nýverið á Geirsnefi

Maður og hundur gengu nýverið á Geirsnefi

Kaupa Í körfu

Kuldakast er í kortunum um helgina að sögn veðurfræðings. Viðbúið er að frost fari niður fyrir 20 stig víða inn til lands- ins. Á höfuðborgarsvæðinu má gera ráð fyrir 10-14 stiga frosti. Þrátt fyrir kuldann er búist við hæglætisveðri víða um land, bjartviðri og hægum vindi. Í kjölfar spárinnar reikna Veitur með mikilli notkun á heitu vatni á höfuðborgarsvæðinu. Ef hún gengur eftir gætu íbúar höfuðborgarsvæðisins orðið varir við að þrýstingur á heitu vatni minnki en heitt vatn til húshitunar hefur ávallt forgang. Veitur hvetja fólk til að fara vel með varmann og athuga þéttingar á gluggum og hurðum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar