Styrkur í stað jólakorta

Jón Sigurðsson

Styrkur í stað jólakorta

Kaupa Í körfu

Blönduósbær hefur ákveðið að styrkja félög sem vinna að líknarmálum með fjárupphæð sem nemur kostnaði sveitarfélagsins við jólakortin. Bæjarstjórnin ákvað að láta hjartað ráða för við fyrstu úthlutunina í orðsins fyllstu merkingu en félag hjartasjúklinga á Norðurlandi vestra fékk 50.000 kr. til starfsemi sinnar. Hafðu hjartans þökk, sagði Sigurlaug Hermannsdóttir, formaður félagsins, er hún veitti andvirði jólakorta Blönduósbæjar viðtöku úr hendi bæjarstjórans, Jónu Fanneyjar Friðriksdóttur. Sigurlaug er til vinstri og Jóna Fanney til hægri.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar