Jón Kristjánsson, Garðar og Berglind

Jim Smart

Jón Kristjánsson, Garðar og Berglind

Kaupa Í körfu

HEILBRIGÐISRÁÐHERRA, Jón Kristjánsson, heimsótti Hugarafl í Heilsugæslunni við Drápuhlíð í gær og þáði þar kaffi og með því. Hugarafl er nýstofnað félag einstaklinga sem átt hafa við geðræn vandamál að stríða en eru nú á batavegi og berst félagið m.a. fyrir því að þeir sem þurfa að nota geðheilbrigðisþjónustu geti haft áhrif á hana með ýmsum hætti og miðlað þar með af reynslu sinni. MYNDATEXTI: Garðar og Berglind, sem starfa með Hugarafli, tóku á móti heilbrigðisráðherra í gær. Ráðherra kynnti sér starfsemi Hugarafls.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar