Margt smátt/Bolur ehf. skiptir um eigendur

Eyþór Árnason

Margt smátt/Bolur ehf. skiptir um eigendur

Kaupa Í körfu

EIGENDASKIPTI hafa orðið á auglýsingavörufyrirtækinu Margt smátt/Bolur ehf. Árni Esra Einarsson, markaðsstjóri fyrirtækisins, hefur keypt hlut Guðmundar Magnússonar og fjölskyldu hans en þeir Guðmundur og Árni hafa starfað saman að rekstri félagsins um ellefu ára skeið. Í tilkynningu vegna viðskiptanna er haft eftir Árna að spennandi tækifæri séu framundan á þessum markaði og að haldið verði áfram því starfi sem unnið hafi verið að á undanförnum árum með góðum árangri. Ýmsar nýjungar séu framundan sem þó sé ekki tímabært að greina frá nú.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar