Hellisheiði - orkuveituframkvæmdir

Hellisheiði - orkuveituframkvæmdir

Kaupa Í körfu

Vinna við Hellisheiðarvirkjun gengur vel, borun í fullum gangi og stöðvarhús að rísa. Mikið er um að vera á vinnusvæði Hellisheiðarvirkjunar, um 300 starfsmenn frá fjölda verktaka vinnur hörðum höndum að því að bora holur, leggja leiðslur, reisa hús og leggja vegi á svæðinu. Framkvæmdir eru að mestu á áætlun, og á fyrsta áfanga, samtals 90 megavatta gufuaflsvirkjun, að vera lokið í október 2006. MYNDATEXTI: Verið var að taka saman hinn risavaxna bor Geysi í gær til að færa hann til innan svæðisins.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar