Hagbarður TH 1

Hafþór Hreiðarsson

Hagbarður TH 1

Kaupa Í körfu

Húsavík | Samvinnufélagi útgerðarmanna og sjómanna á Húsavík, sem stofnað var í árslok 1943, var slitið á dögunum og ákvað stjórn þess og skilanefnd að ánafna eignum þess til góðgerðarmála. Sjóminjasafnið á Húsavík, Björgunarsveitin Garðar og Hvammur, heimili aldraða á Húsavík, fengu eina milljón króna hver og Golfklúbbur Húsavíkur fjögur hundruð og sjötíu þúsund krónur. MYNDATEXTI: Hagbarður Nokkrir fyrrverandi skipverjar á Hagbarði TH 1 voru viðstaddir þegar líkanið af bátnum var afhent Sjóminjasafninu á Húsavík. Þeirra á meðal Guðmundur G. Halldórsson, til hægri, sem hér virðir það fyrir sér ásamt þeim Kristjáni Ásgeirssyni og Herði Þórhallssyni. Guðmundur gaf út fyrir nokkrum árum minningabrot sín í bókinni "Úr koppalogni í hvirfilbyl" og þar segir hann nokkrar sögur frá því hann var á Hagbarði.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar