Áramótaborð

Áramótaborð

Kaupa Í körfu

Við erum þriðja kynslóðin sem snæðir af þessu stelli," segir Margrét Jóhanna Jóhannsdóttir verslunarstjóri í Villeroy & Boch og á við forkunnarfagurt matarstell sem prýðir áramótaborð fjölskyldunnar. Noritake stellið sem er sjötíu ára gamalt og ófáanlegt í dag er sérlega fallegt, upprunnið í Japan. Foreldrar hennar, þau Guðrún Jónsdóttir og Jóhann. J. Ólafsson reka Heildverslun Jóhann Ólafsson og co. þar sem stellið var selt og fyrir tíu árum keyptu þau inn í Noritake stellið úr dánarbúi. "Það fólk hafði keypt stellið af okkur sjötíu árum áður. Skilafresturinn var því einn sá lengsti sem þekkist, eða sextíu ár!" segja þau og hlæja dátt. MYNDATEXTI Borðið rúmar allt að 12 manns og er sérlega glæsilegt. Fallega skreyttir undirlagsdiskarnir eru líka Noritake og setja fallegan svip á borðið. Silfurhnífapörin keypti faðir Margrétar Jóhönnu í Bretlandi en glösin í Belgíu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar