Fimm ætliðir - Borgarnes

Guðrún Vala Elísdóttir

Fimm ætliðir - Borgarnes

Kaupa Í körfu

Fimm ættliðir í beinan kvenlegg Birgitta Brá Jónsdóttir var skírð í Borgarneskirkju sunnudaginn 21. janúar. Skírnarbarnið rekur ættir sínar m.a. til Ísafjarðar og Borgarness og getur státað af því að eiga fleiri ömmur í móðurætt en gengur og gerist. Birgitta Brá er nefnilega sú fimmta í beinan kvenlegg og voru mamma, amma, langamma og langalangamma allar viðstaddar skírnina. Á meðfylgjandi mynd eru þær samankomnar, Guðrún Sveinsdóttir er fædd 1920, Ása Gústavsdóttir fædd 1944, Guðrún Birgisdóttir fædd 1963, Ása Rut Halldórsdóttir fædd 1981 og Birgitta Brá fædd árið 2000. ENGINN MYNDATEXTI. mynd kom ekki.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar