Íþróttasvæðið

Sigurður Jónsson

Íþróttasvæðið

Kaupa Í körfu

Selfoss | "Það er löngu kominn tími á vel búið fjölnota íþróttahús í Árborg og fer þörfin vaxandi með fjölgun íbúa. Staðsetning við Engjaveg er heppilegust að mati íþróttahreyfingarinnar og við viljum setja málið formlega á dagskrá með þessari tillögu og munum fylgja málinu áfram þar til húsið rís," sagði Eyþór Arnalds, bæjarfulltrúi og oddviti sjálfstæðismanna í minnihluta bæjarstjórnar Árborgar, en minnihlutinn lagði fram tillögu á fundi bæjarstjórnar sl. miðvikudag um byggingu 13.000 fermetra fjölnota íþróttahúss við Engjaveg á Selfossi sem verði tekið í notkun fyrir árslok 2008.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar