Tjaldurinn Sigtryggur hinn gæfi

Tjaldurinn Sigtryggur hinn gæfi

Kaupa Í körfu

Þeir eru vinir mínir,“ segir Bjarkey Magnúsdóttir fuglavinur á Hringbrautinni um tvo tjalda sem hafa komið reglulega í fæði til hennar. Annar þeirra er greinilega fjölskyldufaðir því hann fer alltaf með hluta af matnum annað. „Ég kynntist Sigtryggi einn góðan veðurdag þegar hann byrjaði að venja komur sínar hingað, en mér þykir vænt um tjalda, vegna þess að ég hef oft verið að passa kríuvarpið vestur á Snæfellsnesi yfir sumarið en þar verpir tjaldurinn nálægt,“ segir hún en bætir við að þar sé hann frekar styggur og því sé þetta óvenjulegt.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar