Grunnskóli Grundarfjarðar

Gunnar Kristjánsson

Grunnskóli Grundarfjarðar

Kaupa Í körfu

AÐ frumkvæði Evrópuráðsins hefur sérstakur dagur verið tekinn frá og haldinn hátíðlegur í evrópskum skólum. Markmiðið með slíkum degi er að vekja athygli á mikilvægi tungumálakunnáttu og hvetja til símenntunar í tungumálum. Er þetta þriðja árið sem slíkur dagur er haldinn. Í grunnskólanum í Grundarfirði tóku nemendur virkan þátt í deginum. Hver bekkur valdi sér ákveðið Evrópuland til þess að kynna sér og í sumum tilfellum helgaðist valið af því að í viðkomandi bekk var e.t.v. nemandi frá því landi. Bekkirnir útbjuggu síðan kynningar og settu upp í stofum sínum. Síðan ferðuðust nemendur milli landa innan veggja skólans með vegabréfin sín og fengu stimpil í þau ásamt því að fræðast um viðkomandi land og læra nokkur orð á viðkomandi máli. MYNDATEXTI: Krakkarnir í 8. bekk voru í heimsókn hjá níunda bekk til að leita sér upplýsinga um Lettland en í þeim bekk er nemandi frá Lettlandi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar