Jeppasýning hjá Toyota

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Jeppasýning hjá Toyota

Kaupa Í körfu

Síðastliðinn Valentínusardag héldu Toyota á Íslandi og Arctic Trucks árlega jeppasýningu sína saman í sjötta sinn. Sýningin er einn af hápunktum ársins hjá jeppaáhugamönnum og hefur alltaf verið mjög vel sótt enda margt áhugavert að sjá. Stjörnur sýningarinnar voru Íslandsbíllinn Land Cruiser 150 með 33" 50 ára afmælispakka, Land Cruiser 200, Hilux og RAV4. Jeppar sem breytt er fyrir 33"-44" dekk voru sýndir bæði í sal og á útisvæði en sérstök áhersla var lögð að þessu sinni á björgunarsveitabíla. Arctic Trucks sýndi meðal annars 6 hjóla Hilux með pallhýsi og með drifi á öllum hjólum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar