Aveda á Íslandi - Korpúlfsstaðir

Aveda á Íslandi - Korpúlfsstaðir

Kaupa Í körfu

Túberingar, bleikir tónar og skeggprúðir karlmenn voru mest áberandi á hár- og förðunarsýningu AVEDA á Íslandi, sem haldin var fyrir fagfólk á Korpúlfsstöðum á dögunum. Á sýningunni voru nýjustu línurnar fyrir veturinn 2015/2016 kynntar til sögunnar og var hún ein sú viðamesta sem AVEDA hefur haldið hérlendis. Öllu var til tjaldað, rauðir dreglar og sviðsmyndin vel útfærð í stíl við tilefnið. Hárgreiðslumeistararnir Iðunn Aðalsteinsdóttir hjá Unique, Steinunn Markúsdóttir hjá AVEDAstofunni og Ævar Österby hjá Slippnum höfðu veg og vanda af sýningunni, sem bar yfirskriftina „Sublime Spirit“, og höfðu þau sér til fulltingis átján fyrirsætur; ellefu karla og sjö konur, auk fjölda aðstoðarfólks.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar