Hvalfjarðagöng - Bensínleki

Júlíus Sigurjónsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Hvalfjarðagöng - Bensínleki

Kaupa Í körfu

Tugir bensínlítra láku úr tankbíl í Hvalfjarðargöngunum í gærmorgun Ökumaður fólksbíls gerði viðvart um lekann HVALFJARÐARGÖNGIN voru lokuð fyrir allri umferð í þrjá tíma í gærmorgun vegna bensínleka frá tankbíl á vegum Olíudreifingar sem tilkynnt var um rétt fyrir klukkan tíu. MYNDATEXTI: Lögreglan beindi umferð fyrir Hvalfjörð á meðan bensínið var hreinsað. Göngin voru alveg lokuð í þrjá tíma og rúma fimm tíma í suðurátt. Það sem olli því að bensín lak úr tankbílnum var að loftloki á tengitanki bilaði með þeim afleiðingum að út um hann rann bensín þegar hann ók upp úr göngunum norðanmegin. Mér skilst að bíllinn hafi verið eitthvað ofhlaðinn en engin tengsl eru milli þess og óhappsins," sagði Þórður Þórðarson, aðalvarðstjóri í lögreglunni í Reykjavík, um óhappið í Hvalfjarðargöngum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar