Stofnað verði Flugverndarráð á Íslandi

Ásdís Ásgeirsdóttir
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Stofnað verði Flugverndarráð á Íslandi

Kaupa Í körfu

Samgönguráðherra kynnir breytingar á lögum varðandi flugvernd Stofnað verði Flugverndarráð á Íslandi STURLA Böðvarsson, samgönguráðherra, kynnti á fundi í Þjóðmenningarhúsinu á fimmtudag væntanlegar breytingar á lögum og reglum er lúta að flugvernd á Íslandi. Þar á meðal boðaði ráðherra stofnun Flugverndarráðs en stofnun slíks ráðs er nýmæli hér á landi. Starfsemi ráðsins mun byggjast á lagasetningu sem fram kemur í nýju frumvarpi til loftferðalaga, en því hefur verið dreift á Alþingi og mun ráðherra mæla fyrir frumvarpinu í næstu viku. MYNDATEXTI. Samgönguráðherra kynnir væntanlegar breytingar á lögum er varða aukna flugvernd á Íslandi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar