Jón B. Georgsson

Jón B. Georgsson

Kaupa Í körfu

Mér varð litið út um gluggann á húsinu mínu síðastliðið vor í átt að kirkjunni og þá fannst mér turnspíran svo ber. Á þeirri stundu ákvað ég að gefa kirkjunni kross til að setja efst á spíruna og efna þar með fornt heiti og þakka Drottni fyrir lífið, sem ég ætti samkvæmt úrskurðum hjúkrunarfólks að hafa misst fyrir löngu," sagði Jón B. Georgsson í samtali við Morgunblaðið en fyrir skömmu færði hann Ytri-Njarðvíkurkirkju stálkross að gjöf. Krossinn er jafnframt til minningar um foreldra Jóns, Guðrúnu Magnúsdóttur og Georg E.P. Pétursson frá Brekku, eiginkonu Jóns, Sigríði Jónsdóttur frá Ólafsfirði, og systur, Guðríði Elínbjörgu (Ellu á Brekku). MYNDATEXTI: Jón B. Georgsson hefur sterkar taugar til svæðisins sem Ytri-Njarðvíkurkirkja stendur á. Þar skautaði hann sem ungur drengur, en græna bárujárnshúsið aftan við kirkjuna er æskuheimili Jóns, Brekka.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar