Heilsuleyndarmál Naomi Campbell

Naomi Campbell drekkur stundum safa og vatn í stað þess …
Naomi Campbell drekkur stundum safa og vatn í stað þess að borða. mbl.is/AFP

Ofurfyrirsætan Naompi Campbell er 49 ára og enn þann daginn í dag ein flottasta fyrirsæta heims. Hvernig fyrirsætan borðar spilar líklega inn í hversu vel hún lítur út í dag. Campbell greindi frá aðferðum sínum í viðtali við breska morgunþáttinn Lorreine. 

Spyrillinn spurði hvort það væri rétt sem hann hefði heyrt að hún fastaði einn dag í viku. Campbell svaraði því þannig að hún gerði það líklega oftar en einu sinni í viku en engin regla er á því. Campbell skipuleggur ekki hvenær hún ætlar að fasta. Allt fari eftir því hvernig henni líður hverju sinni. 

„Ég borða þegar mig langar til. Ég svelti mig ekki. Ef ég vil taka einn dag án þess að borða og drekka bara vatn eða safa þá geri ég það. Það fer eftir því hvernig mér líður.“

Hún fastar því reglulega en það er óreglulegt hvenær hún gerir það. Segist hún til dæmis að ef heitt er í veðri þá langi hana ekki alltaf til að borða og drekkur safa í staðinn.

Naomi Campbell.
Naomi Campbell. AFP

Campbell sem var eitt sinn þekkt fyrir villtan lífstíl hugsar nú vel um sig og segist hafa byrjað að æfa fyrir tveimur árum síðan. Nú nýtur hún þess að hreyfa sig og segir það gott fyrir hugann að æfa. Hún er með einkaþjálfarateymi og fær þjálfara til að ferðast með sér þegar hún er á ferðalagi. Hún fer ekki í tækin heldur hefur unun af lotuþjálfun. Hún segist alltaf vera gera eitthvað nýtt á æfingunum og segir það henta sér vel. Mælir hún með því að fara út að ganga ef fólk kemst ekki í ræktina. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál