c

Pistlar:

6. janúar 2020 kl. 12:34

Guðrún Bergmann (gudrunbergmann.blog.is)

Styrktu big í skammdeginu

Í dag er þrettándinn og síðasti jólasveinninn á leið til fjalla. Víða eru álfabrennur og jólin „brennd út“ með þeim. Eftir þrettándann hverfur líka allt jólaskrautið sem lýst hefur upp jólahátíðina.

Þegar öll jólaljósin hverfa verður skammdegismyrkrið áþreifanlegra. Þá sækir oft að fólki þunglyndi, en með burnirót má vinna bug á því.

RHODIOLA ER VÖRN GEGN ÞUNGLYNDI 

Rhodiola frá NOW er unnið úr burnirót. Burnirótinn hefur verið kölluð „gullna rótin“ sökum frábærra eiginleika sinna, en hún vex á köldum norðlægum slóðum, meðal annars hér á landi, þótt hún sé ekki unnin hér.

Einn af stórkostlegum eiginleikum burnirótarinnar (Rhodiola) er að hún eflir og styrkir heilann og er vörn gegn þunglyndi.

Burnirótin eykur næmi taugafrumna (frumna í heila og taugakerfi), þar á meðal taugaboðefnanna tveggja serótóníns og dópamíns. 

Þessi taugaboðefni eru þekkt fyrir að bæta fókus, minni, ánægjutilfinningar og létta lund, auk þess sem dópamínið dregur úr fæðufíkn.

NÁTTÚRULEGT ADAPTÓGEN

Burnirótin (Rhodiola) er öflugt náttúrulegt adaptógen - skv. orðabók er það: efni sem styrkir mótstöðuafl líkamans gegn streitu.

Hún tilheyrir plöntuætt sem er rík af adaptógenum. Þau hjálpa meðal annars líkamanum að aðlagast líkamlegri, kemískri og umhverfislegri streitu, en skammdegið veldur einmitt mörgum streitu. Innan þessarar ættar er burnirótin er talin öflugasta plantan.

DREGUR ÚR ÞREYTUEINKENNUM

Burnirótin (Rhodiola) eykur þol og úthald með því að fjölga rauðum blóðkornum. Rauð blóðkorn flytja súrefni til vöðvanna. Með því að hafa meira magn af þeim, má draga úr þreytueinkennum, auk þess sem Rhodiola dregur úr mjólkursýrumyndun og vöðvaskemmdum.

Rhodiola frá NOW fæst í öllum helstu matvörumörkuðum og apótekum

Heimildir: www.draxe.com og www.globalhealingcenter.com

gudrunbergmann.is

Guðrún Bergmann

Guðrún Bergmann

Guðrún er einn af frumkvöðlum ýmis konar sjálfsræktarnámskeiða, sem hún hefur haldið í rúm 26 ár. Undanfarin tvö ár hefur hún beint sjónum sínum að heilsunni með námskeiðunum HREINT MATARÆÐI. Annars hafa námskeið hennar spannað vítt svið, en þó alltaf með fókus á hvernig bæta má andlega og líkamlega líðan, ná meiri árangri í starfi og njóta aukinna lífsgæða. Nýjasta bók Guðrúnar er matreiðslubókin HREINT Í MATINN, en það er sextánda bók hennar. Að auki hefur hún þýtt fjölda bóka.

Meira