c

Pistlar:

4. febrúar 2020 kl. 12:38

Guðrún Bergmann (gudrunbergmann.blog.is)

Svona léttirðu á vöðva- og liðverkjum

Slitgigtin er talin algeng meðal þeirra sem eru fjörutíu ára og eldri. Hún myndast smátt og smátt við brjóskeyðingu og hefur helst áhrif á liðamót eins og úlnliði, hendur og fingur, mjaðmir og hné.

Bætiefnablandan Glucosamine & Chondroitin með MSM frá NOW, inniheldur þau þrjú efni, sem þekktust eru fyrir að stuðla að heilbigðum liðamótum og endurnýjun brjósks og virkar því sérlega vel gegn slitgigt.

Verkir af völdum slitgigtar tengjast því að brjóskið sem á að virka eins og stuðpúði í liðunum, brotnar niður eða þynnist. Í sumum tilvikum eyðist það jafnvel alveg. 

Þegar þær breytingar verða á brjóskinu, bólgnar liðpokinn og liðamótin gildna. Oft sést það best á hnúum handa eða hnjáliðum, en það er vegna þess að vökvi í liðnum eykst. Algengast er að slit sé í hnjám og mjaðmaliðum, enda mikið álag á þessum liðum.

MINNI VERKIR Í MJÓBAKI

Vísindalegar rannsóknir hafa sýnt að Glucosamine (glúkósamín) og Chondroitin geta dregið úr stirðleika og verkjum í liðamótum og aukið vellíðan. Glucosamine og Chondroitin frá NOW inniheldur einnig MSM, sem hefur reynst vel gegn verkjum í mjóbaki. Þar eyðist oft brjóskið milli hryggjarliðanna og þá getur þetta bætiefni stuðlað að auknum liðleika við allar hreyfingar.

Glucosamine- og Chondroitin-súlfat eru efnis- og endurnýjunarþættir í eðlilegu liðbrjóski og liðvökva. Þegar bætiefni sem innihalda þessi efni eru tekin inn örva þau líkamann til að búa til meira brjósk.

Chondroitin-súlfatið er einnig talið auka stuðdempandi eiginleika kollagens og blokka ensím sem brjóta niður brjóskið. Að auki hjálpar það brjóskinu að geyma vatn og vinnur með glúkósamíninu að því að draga úr brjóskeyðingu.

STERKARA ÓNÆMISKERFI, MINNI BÓLGUR

Þriðja efnið í bætiefnablöndunni er MSM. Það er mikið notað til að létta á vöðva- og liðverkjum, draga úr bólgum og styrkja ónæmiskerfi líkamans. MSM er skammstöfun fyrir heitið Methylsulfonylmethane.

Þetta bætiefni hefur áhrif á ýmis líkamleg einkenni og verki í líkamanum. Auk þess að létta á vöðva- og liðverkjum, draga úr bólgum og efla ónæmiskerfi líkamans örvar MSM framleiðslu á Glutathione, sem er eitt öflugasta andoxunarefni líkamans. 

Við kröftuga líkamsrækt verða yfirleitt vöðvaskemmdir og oxandi streita í líkamanum eykst. MSM stuðlar að góðri endurheimt vöðva, dregur úr bólgum og vinnur á þessari oxandi streitu. Einnig dregur MSM úr verkjum tengdum liðagigt.

MSM er ekki bara gott fyrir íþróttamenn og einstaklinga sem stunda líkamlega erfiðisvinnu, heldur fyrir alla þá sem eru með óútskýrða verki í liðamótum og í mjóbaki.

Glucosamine & Chondroitin með MSM vinnur innanfrá og styrkir brjóskið og örvar það til að endurnýja sig. Það virkar því líka vel á vefjagigt, sem veldur oft mjög slæmum liðverkjum og á beinþynningu, getur líka leitt til verkja í liðum og liðamótum.

EKKI GLEYMA ÞESSU ÞRENNU

Samhliða því að taka inn Glucosamine & Chondroitin með MSM er mikilvægt að styðja viðgerðarferli í líkamanum með þessum þremur þáttum:

1 – MATARÆÐI með ferskri fæðu, grænu grænmeti og kjöti soðnu á beini.

2 – HREYFINGU, sem getur verið sund, gönguferð eða léttar æfingar í minnst 30 mínútur á dag. Léttar æfingar með lóðum eru líka góðar fyrir bein og liðamót.

3 – GÓÐUR NÆTURSVEFN, helst í sjö til níu tíma á nóttu, til að líkaminn hafi tækifæri til eigin viðgerða og til að tryggja að liðir og liðamót okkar haldist sterk og öflug sem lengst. 

Glucosamine og Chondroitin með MSM er vara febrúar hjá Hverslun og er með 16% afslætti út mánuðinn.

Heimildir: Grein um Glucosamine Sulfate á www.webmd.com 
Grein um Chondroitin Sulfate á www.arthritis.org o.fl.
Grein um Liðverki á www.healthline.com

Guðrún Bergmann, heilsu- og lífsstílsráðgjafi og leiðbeinandi á HREINT MATARÆÐI námskeiðum.

 

Guðrún Bergmann

Guðrún Bergmann

Guðrún er einn af frumkvöðlum ýmis konar sjálfsræktarnámskeiða, sem hún hefur haldið í rúm 26 ár. Undanfarin tvö ár hefur hún beint sjónum sínum að heilsunni með námskeiðunum HREINT MATARÆÐI. Annars hafa námskeið hennar spannað vítt svið, en þó alltaf með fókus á hvernig bæta má andlega og líkamlega líðan, ná meiri árangri í starfi og njóta aukinna lífsgæða. Nýjasta bók Guðrúnar er matreiðslubókin HREINT Í MATINN, en það er sextánda bók hennar. Að auki hefur hún þýtt fjölda bóka.

Meira