c

Pistlar:

14. september 2020 kl. 9:12

Guðrún Bergmann (gudrunbergmann.blog.is)

15 áhugaverðar staðreyndir um sykur

Sykur er að finna um allt og í fleiri fæðutegundum og drykkjum en flesta grunar. Sykurreyr hefur verið ræktaður frá fornu fari og er enn notaður til að bragðbæta svo ótal margt. Þótt þú sért í SYKURLAUSUM SEPTEMBER þessa stundina er gaman að kynna sér aðeins sögu sykurs. 

1 – EITT SINN VAR LITIÐ Á SYKUR SEM KRYDD – EN EKKI SÆTUEFNI

Þegar sykur koma fyrst til Bretlands á tólftu öld, var hann flokkaður með kryddum eins og engifer, kanil og saffron og einungis notaður af þeim ríku til að bragðbæta rétti sína. 

2 – SYKUR VAR NOTAÐUR SEM LÆKNINGALYF Í MARGAR ALDIR

Notkun á sykri sem lækningalyfi nær að minnsta kostir aftur til níundu aldar í Írak, þar sem hann var blandaður við ávexti og krydd til að búa til læknandi síróp, duft og jurtaseiði. Mörgum öldum síðar ávísuðu breskir læknar sykri sem lækningalyfi við mörgum sjúkdómum. Einn þeirra sem var upp á átjándu öld lagði til dæmis til að sykri yrði blásið í augu þeirra sem voru með augnsjúkdóma.

3 – EVRÓPSKT KÓNGAFÓLK BJÓ TIL SYKURSTYTTUR „SUBTLETIES“

Á þrettándu öld var sykurblanda sem líktist marsipani notuðu til að móta ýmsar styttur og form, sem voru til sýnis á konunglegum hátíðum. Þótt stytturnar litu vel út, voru þær ekki sérlega bragðgóðar, enda sykri blandað við fullt af hnetum, mauki og gúmmíi til að gera hann leirkenndan.

4 – Í EVRÓPU VAR SYKUR FYRST LÚXUSVARA

Til að byrja með var sykur svo dýr að einungis kóngafólk hafði efni á að nota hann og það meira að segja bara í litlu magni. Á þrettándu öld reyndi Hinrik III eitt sinn að panta eitt og hálft kíló af sykri, en efaðist um að svo mikið af sykri fyndist á Englandi.

5 – Á NÍTJÁNDU ÖLD VAR ALÞÝÐAN FARIN AÐ NOTA SYKUR

Þegar kom að árinu 1850, var neysla bresku alþýðunnar á sykri, komin langt umfram neyslu hinna ríku. Þegar verð á sykri lækkaði fór fólk að nota sykur í alls konar bakstur og í hafragrautinn. Á sama tíma byrjaði alþýðan að nota sykur í teið sitt – og sá siður hefur haldist til dagsins í dag.

6 – SYKURREYR FYRST RÆKTAÐUR Í NÝJU-GÍNEU 8000 f. Kr.

Þaðan fluttist ræktunin til Filipseyja og Indlands. Í reynd er fyrst minnst á sykur í The Mahabhashya of Patanjali, námsefni um Sanskrít sem skrifað var um það bil 300-400 fyrir Krist.

7 – SYKURNEYSLA VELDUR HRUKKUM

Flestir vita að neysla á of miklum sykri leiðir til þyngdaraukningar, en fáir vita að hann hefur líka áhrif á teygjanleika húðarinnar. Ofneysla á sykri leiðir til þess að sykurinn í blóðinu bindur sig við prótein og býr til mólekúl sem gera kollagenið í húðinn brothættara – og það veldur síðan hrukkum.

8 – SYKUR MÁ NOTA SEM ROTVARNAREFNI

Sykur hefur verið notaður sem rotvarnarefni í hundruðir ára og loks hafa vísindamenn komist að hvers vegna. Sykur í miklu magni veldur því að bakteríur missa vökva í gegnum það sem kallast osmósi (gegnflæði) – og án vökva geta bakteríur hvorki vaxið né skipt sér.

9 -  HUNDAR ERU VEIKIR FYRIR SYKRI, EN KETTIR EKKI

Vísindamenn eru enn að rannsaka hvers vegna sum dýr vilja sæta fæðu og önnur ekki. Þeir hafa komist að því að hundar eru veikir fyrir sykri, meðan kettir og önnur kattardýr eru það ekki.

10 – MEÐAL BANDARÍKJAMAÐUR NEYTIR 75 KÍLÓA AF SYKRI Á ÁRI

Árið 2019 var gert ráð fyrir að meðal bandaríkjamaður neytti 75 kílóa af sykri á ári eða sem svarar til 6 bolla af sykri á viku eða 13,3 teskeiða á dag. Ég fann ekki sambærilegar tölur fyrir Ísland, þrátt fyrir nokkra leit.

11 – OFNEYSLA Á SYKRI TENGD SKERTI GREIND

Það þýðir að ef þú borðar of mikið af sykri verðurðu heimskari – alla vega ef þú ert rotta. Það eru einu dýrin sem vísindamenn hafa rannsakað enda mikil líkindi milli heila þeirra og heila manna – og því gert ráð fyrir að of mikið af sykri skerði líka greind manna.

12 – TIL ERU MARGAR TEGUNDIR

Til eru þrír meginflokkar sykurs, einsykrungar (monosaccharides), tvísykrur (disaccharides) og fjölsykrur (polyols). Einsykrur og tvísykrur er að finna í mörgum vörutegundum, allt frá ávöxtum og yfir í strásykur og mjólk. Fjölsykrur eru hins vegar ekki eiginlegur sykur, en þær er helst að finna í sykurlausum sætuefnum.

13 – SYKUR MÁ NOTA SEM ELDSNEYTI

Sykur er meginuppistaðan í efni sem kallast „geimfluga nammi“ sem er vinsælt form af geimflaugaeldsneyti. Vísindamenn vinna enn í því að gera eldsneyti úr sykri fyrir bíla.

14 – SYKUR ER ÁVANABINDANDI

Þess vegna fylgja því fráhvarfseinkenni að hætta neyslu á honum, með einkennum eins og verkjum, ógleði og almennri vanlíðan í líkamanum.

15 – SYKUR HEFUR VERIÐ NOTAÐUR Í LJÓÐUM OG TÓNLIST

Oft er vísað til sykurs í ljóðum og tónlist, einkum frá því um miðja síðustu öld og má þar nefna hljómsveitir og tónlista menn eins og Talking Heads (Sugar on my Tongue) – Rolling Stones (Brown Sugar) – Maroon 5 (Sugar) 

Heimildir: www.angelesinstitute.eduwww.mentalfloss.com

Guðrún Bergmann

Guðrún Bergmann

Guðrún er einn af frumkvöðlum ýmis konar sjálfsræktarnámskeiða, sem hún hefur haldið í rúm 26 ár. Undanfarin tvö ár hefur hún beint sjónum sínum að heilsunni með námskeiðunum HREINT MATARÆÐI. Annars hafa námskeið hennar spannað vítt svið, en þó alltaf með fókus á hvernig bæta má andlega og líkamlega líðan, ná meiri árangri í starfi og njóta aukinna lífsgæða. Nýjasta bók Guðrúnar er matreiðslubókin HREINT Í MATINN, en það er sextánda bók hennar. Að auki hefur hún þýtt fjölda bóka.

Meira