Heimir Hallgrímsson fimmtugur í dag

Heimir Hallgrímsson á afmæli í dag.
Heimir Hallgrímsson á afmæli í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon

Heimir Hallgrímsson, landsliðþjálfari í knattspyrnu er fimmtugur í dag. Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliði lét fjölmiðlamenn vita af þessu á fréttamannafundi í dag, þó Heimir virtist ekki sérstaklega ánægður með það. 

Leikmenn sungu afmælissöng fyrir þjálfarann fyrir æfingu liðsins í dag, sem er síðasta æfing liðsins fyrir leikinn gegn Króatíu annað kvöld. 

Ef Heimir fengi að velja afmælisgjöf, væri það eflaust sigur gegn Króatíu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert