Geir kveðst ekki hafa farið á bak við Heimi

Lars Lagerbäck, Geir Þorsteinsson og Heimir Hallgrímsson
Lars Lagerbäck, Geir Þorsteinsson og Heimir Hallgrímsson mbl.is/Golli

Geir Þorsteinsson, fyrrverandi formaður KSÍ og núverandi heiðursformaður sambandsins, er ekki sáttur við ummæli Heimis Hallgrímssonar landsliðsþjálfara karla í knattspyrnu í viðtali sem birtist í DV á föstudaginn og kveðst aldrei hafa farið á bakvið hann.

Þar segir Heimir að hann telji að Geir hafi farið á bakvið sig þegar hann ræddi við Lars Lägerback um framlengingu á samningi sænska þjálfarans árið 2015 en áður hafði verið samið um að Heimir tæki einn við landsliðinu þegar Lars léti af störfum eftir EM 2016 í Frakkland.

„Ég hefði lí­klega ekki farið aftur með Lars í undankeppni fyrir EM árið 2014 nema vegna þess ákvæðis­ í samningnum mí­num um að ég tæki við liðinu eftir að mótinu lyki. Að KSÍ skyldi hefja viðræður við Lars um framhald fram yfir EM var í­ raun brot á samningi mínum við KSÍ. Ef KSÍ hefði samið við Lars hefði samningurinn við mig í raun orðið marklaus,“ segir Heimir í viðtalinu við DV. 

„Mér fannst að formaðurinn hefði átt að ræða við mig fyrst um breytingu á samningnum mínum eða eitthvað þess háttar. Ég er ekki viss um að ég hefði verið ánægður í starfi ef Lars hefði verið áfram. Ekki það að ég hefði ekki viljað vinna með Lars, ég var hins vegar bara með metnað til þess að taka við liðinu einn. Ég var búinn að vera aðstoðarþjálfari í tvö ár, meðþjálfari í tvö ár og fannst ég reiðubúinn að stýra liðinu,“ sagði Heimir ennfremur í viðtalinu við DV.

Geir sendi mbl.is eftirfarandi tilkynningu:

„Ísland er komið á HM. Til hamingju leikmenn, þjálfarar og allir sem lögðu hönd á plóg sem eru ófáir. Sannarlega glæsilegt afrek hjá ykkur í heimi knattspyrnunnar. Ég lít stoltur til baka og minnist þess þegar ég hafði samband við Heimi Hallgrímsson knattspyrnuþjálfara og bauð honum að koma til starfa fyrir KSÍ. Þá hafði enginn – ég ítreka enginn – stungið upp á Heimi til þeirra starfa fyrir KSÍ. Ég sá að þar fór sómamaður, efnilegur og metnaðarfullur þjálfari.

Í viðtali í DV segir Heimir að ég hafi farið á bakvið sig í störfum mínum fyrir KSÍ. Þetta er rangt. Í störfum mínum innan knattspyrnuhreyfingarinnar kom ég ávallt fram af heiðarleika. Hið rétta er að KSÍ samdi við Heimi um að taka við landsliðinu að lokinni úrslitakeppni EM 2016. Ekkert í þeim samningi kom í veg fyrir að ég ræddi við Lars Lagerbäck um hvort hann hefði áhuga á að halda áfram eftir úrslitakeppni EM 2016. KSÍ bar ekki að leita samþykkis Heimis en ég gerði mér fyllilega grein fyrir því hver vilji hans var enda skjalfast. Áhugi KSÍ að hafa Lars áfram í starfi kom fram á opinberum vettvangi og var öllum ljós. Aldrei kom til samningsviðræðna við Lars því hann ákvað að láta staðar numið. 

Ræða má ef og hefði. Ef Lars hefði viljað halda áfram, hefði KSÍ orðið að óska eftir breytingum á samningi sínum við Heimi ella greiða umsamdar bætur. Til þess kom hins vegar aldrei og KSÍ hefur í einu og öllu staðið við sinn samning við Heimi. Rétt er að Heimir var ósáttur við þessa atburðarás og tjáði mér það. Hins vegar er það svo að stjórnun KSÍ er í höndum stjórnar og ársþings. Oft er reynt að verða við óskum þjálfara landsliða en það er engu að síður stjórn KSÍ sem gætir heildarhagsmuna sambandsins.

Það að Heimir hafi verið ósáttur við mín vinnubrögð í þessu máli skil ég – en ég fór að vilja KSÍ í málinu og á bakvið Heimi fór ég aldrei. Mitt ráð til hans og þeirra sem njóta nú þess mikla afreks að Ísland er komið á HM, er að koma fram af auðmýkt og þakklæti. Við stöndum nú öll á öxlum risa sem eru störf og afrek þeirra sem á undan okkur gengu í knattspyrnuhreyfingunni.“

Með vinsemd og virðingu,

Geir Þorsteinsson,

heiðursformaður KSÍ.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert