Glæsileg einstaklingsframtök Sterling og Schade (myndskeið)

Raheem Sterling, leikmaður Chelsea, og Kevin Schade, leikmaður Brentford, voru á meðal þeirra leikmanna sem sýndu glæsileg tilþrif í þriðju umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu um síðustu helgi.

Báðir skoruðu þeir glæsileg mörk eftir frábær einstaklingsframtök í 3:0-sigrum liða sinna.

Jarrod Bowen, sóknarmaður West Ham United, skoraði og lagði upp lagleg mörk í 3:1-sigri á Brighton & Hove Albion.

Bestu tilþrif þriðju umferðar úrvalsdeildarinnar má sjá í spilaranum hér að ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert