Samfélagsmiðlastjarnan mætt til leiks

Ný uppfærsla Fortnite fer í loftið í dag.
Ný uppfærsla Fortnite fer í loftið í dag. Grafík/EpicGames

Tölvuleikurinn Fortnite fær nýja uppfærslu í dag en nýja tímabilið, tímabil 4 í kafla 4, hefur gert marga spilara spennta að kveikja á leiknum á ný.

Eitt af því fyrsta sem framleiðandi leiksins, Epic Games, birti af tímabilinu var þemað sem unnið verður með. Þemað er nokkuð frábrugðið því sem var áður en á síðasta tímabili var frumskógurinn allsráðandi.

Samfélagsmiðlastjarnan Khaby Lane hefur samið við leikjaframleiðandann og verður aðgengilegur spilurum í leiknum. Khaby Lane skaust á stjörnuhimininn á samfélagsmiðlinum TikTok. Fortnite mun einnig halda áfram að setja inn nýjar persónur úr Star Wars.

Uppfærslan fer í loftið í dag, 25. ágúst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert