Neymar með hettusótt

Neymar hvílir sig næstu daga.
Neymar hvílir sig næstu daga. AFP

Brasilíski knattspyrnukappinn Neymar missir af næstu leikjum Barcelona eftir að hafa verið greindur með hettusótt. Hann missir af leik Barcelona gegn Sevilla um Stórbikar Evrópu.

Í Stórbikar Evrópu mætast liðið sem vann Meistaradeildina og liðið sem vann Evrópudeildina. 

Byrjun spænsku 1. deildarinnar er einnig í hættu en Barcelona heimsækir Athletic Bilbao í fyrstu umferðinni sunnudaginn 23. ágúst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert