Fyrsta sem mér dettur í hug er skítakuldi

Luka Modrić á fundinum í kvöld.
Luka Modrić á fundinum í kvöld. mbl.is/Hanna

„Við höfum lagt mikið á okkur á æfingum í vikunni og við erum spenntir að fá að takast á við þetta verkefni. Þetta er mikilvægasti leikurinn okkar í þessari undankeppni og það væri stórt skref í áttina að sæti á HM að ná að vinna," sagði Luka Modrić, fyrirliði króatíska landsliðsins í knattspyrnu á fréttamannafundi í Laugardalnum í kvöld. 

„Við höfum spilað mikið við Ísland undanfarið og við vitum hversu sterkt liðið er, sérstaklega á heimavelli. Ég hef hins vegar trú á okkar styrkleikum og við ætlum að koma hingað til að vinna."

Hvað man Modrić eftir frá síðustu heimsókn til Íslands? 

„Fyrsta sem mér dettur í hug er skítakuldi. Þetta var erfiður leikur og það var lítið um færi. "

Modrić hrósaði Gylfa Sigurðssyni sérstaklega. 

„Helsti styrkleiki Íslands er liðsheildin en Gylfi hefur sannað sig í ensku úrvalsdeildinni og efstu deild í Þýskalandi. Hann er virkilega góður leikmaður," sagði Luka Modrić

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert