Neymar með slitið krossband

Neymar fór sárþjáður af velli.
Neymar fór sárþjáður af velli. AFP/Pablo Porciuncula

Brasilíski knattspyrnumaðurinn Neymar meiddist illa á hné er hann og liðsfélagar hans í brasilíska landsliðinu töpuðu fyrir Úrúgvæ í undankeppni HM í nótt.

Er Neymar með slitið krossband og þarf á aðgerð að halda. Verður hann frá keppni næsta tæpa árið vegna meiðslanna.

Al-Hilal, félagslið hans í Sádi-Arabíu, staðfesti tíðindin í kvöld. Neymar fór grátandi af velli í nótt og var strax ljóst að um alvarleg meiðsli væri að ræða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert