Kristín og Guðfinnur best á árinu

Kristín Þórhallsdóttir hefur náð mögnuðum árangri á stuttum ferli.
Kristín Þórhallsdóttir hefur náð mögnuðum árangri á stuttum ferli. Ljósmynd/Hinrik Pálsson

Kristín Þórhallsdóttir og Guðfinnur Snær Magnússon var besta kraftlyftingafólk ársins að mati Kraftlyftingasambands Íslands.

Kristín, sem er 38 ára, hefur náð mögnuðum árangri í greininni, þrátt fyrir að byrja afar seint að stunda hana að alvöru. Hún hlaut einnig nafnbótina á síðasta ári. Guðfinnur er kraftlyftingakarl ársins í fyrsta sinn, en hann er 25 ára og náði langt á stórmótum á árinu.

Umfjöllun Kraftlyftingasambands Íslands um Kristínu:

Kristín Þórhallsdóttir er kraftlyftingakona ársins i annað sinn og annað árið í röð, en hún keppir í klassískum kraftlyftingum í -84kg flokki.

Kristín er 38 ára gömul og keppir fyrir Kraftlyftingafélag Akraness. Kristín vann silfurverðlaun á EM og HM og tvíbætti Evrópumetin í hnébeygju og samanlögðu á árinu.

Hún bætti auk þess Íslandsmetin í hnébeygju, réttstöðulyftu, réttstöðulyftu og samanlögðu. Kristín náði 110,27 IPF-GL stigum á árinu, en það er mesti stigafjöldi sem íslenskur keppandi hefur náð.

Helstu afrek ársins:

HM í Suður-Afríku í júní:

Silfurverðlaun samanlagt – 580 kg – nýtt Evrópumet

Silfurverðlaun í hnébeygju – 230 kg – nýtt Evrópumet

Silfurverðlaun í bekkpressu – 120 kg

Bronsverðlaun í réttstöðulyftu – 230 kg – nýtt íslandsmet

EM í Póllandi í desember:

Silfurverðlaun samanlagt – 575 kg

Gullverðlaun í hnébeygju – 217,5 kg

Bronsverðlaun í bekkpressu – 120 kg

Silfurverðlaun í réttstöðulyftu – 237,5 kg

Umfjöllun Kraftlyftingasambands Íslands um Guðfinn:  

Guðfinnur Snær Magnússon er kraftlyftingakarl ársins 2022 og hlýtur nafnbótina í fyrsta sinn. Hann er 25 ára gamall og keppir fyrir Kraftlyftingadeild Breiðabliks.

Guðfinnur keppir í kraftlyftingum í +120kg flokki. Hann lenti í fjórða sæti í sínum flokki á HM og vann bronsverðlaun í bekkpressu sem er hans sterkasta grein. Guðfinnur er bikarmeistari ársins í bekkpressu og varð í þriðja sæti á bikarmótinu í klassískri bekkpressu. 

Helstu afrek ársins:

HM í Danmörku í nóvember:

Fjórða sæti samanlagt – 995 kg

Bronsverðlaun í bekkpressu – 315 kg

Bikarmeistari KRAFT í bekkpressu.

Þriðja sæti á Bikarmóti KRAFT í klassískri bekkpressu.  

Guðfinnur Snær Magnússon.
Guðfinnur Snær Magnússon. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert